Grenndarkynning starfsmannabúðir að Hnappavöllum 1

Þingvangur ehf. sækir um heimild til að staðsetja starfsmannabúðir að Hnappavöllum 1 vegna framkvæmda sem fyrirhugaðar eru í Skaftafelli 3A til 3C. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði. Samþykki landeiganda liggur fyrir.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum þann 02.05.2023 að grenndarkynna byggingaráform á lóðinni samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.

Teikningar má nálgast hér  

Landeigendum gefst kostur á að gera athugasemdir við fyrirhugaðar framkvæmdir til 8. júní 2023. Athugasemdir skulu berast til undirritaðri á netfangið skipulag@hornafjordur.is 

Virðingarfyllst

Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagsstjóri
Sveitarfélagsins Hornafjarðar