Grenndarkynning vegna breytinga á Miklagarði og Verðanda

Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir grenndarkynningu vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hafnarvík – Heppa

Fyrirhugaðar eru breytingar og endurbætur á Miklagarði, Verðanda og umhverfi þessara húsa.
Gert er ráð fyrir að byggja við og endurnýja Miklagarð við Krosseyarveg 5 - 7, fyrirhugaðar breytingar gera ráð fyrir að heimilt verði að lækka landið framan við kjallara Miklagarðs að lóðarmörkum, að byggja nýtt hús í stað rústanna af Verðanda við Heppuveg 2B, og gera aðkomutorg fyrir Miklagarð og Heppuna á þeim hluta lóðarinnar Graðaloftið stóð á.

Uppdráttur

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þeir sem hafa hagsmuna að gæta geta gert athugasemdir við breytinguna til 17. apríl 2022 skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 eða á skipulag@hornafjordur.is

Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Sveitarfélagsins Hornafjarðar