Grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi við Hof í Öræfum

Grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi við Hof í Öræfum.

Sveitarfélagið Hornafjörður kynnir óverulega breytingu á deiliskipulagi við Hof í Öræfum þar sem heimilt verður að byggja allt að 385 m2 raðhús á lóðum 3 og 5 við Borgartún. Aðkoma að lóðum breytist og verður norðanmegin við húsin við lóðamörk.

Uppdráttur

Þeir sem hafa hagsmuna að gæta geta gert athugasemdir við breytinguna til 24. febrúar 2022 skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Athugasemdir skulu berast til Brynju Dögg Ingólfsdóttur umhverfis- og skipulagsstjóra eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is