Nýtt verslunar og þjónustusvæði á Höfn og breyting íbúðarsvæðis ÍB5

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 11. janúar 2024 að auglýsa tvær breytingar á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Annars vegar er um að ræða nýtt verslunar- og þjónustusvæði VÞ-51 austan Hafnarvegar og norðan Hafnarbrautar þar sem heimilt verður að reisa rýmisfrekar verslanir og þjónustu á 3 ha svæði.

Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt, mál nr. 590/2023.

Hins vegar er um að ræða breytingu á afmörkun og skipulagsákvæðum reitar ÍB5 sem liggur austan Hafnarvegar og sunnan Hafnarbrautar. Reiturinn er 5,6 ha fyrir breytingu en stækkar í 13,4 ha.

Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt, mál nr. 10/2023.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar á auglýsingartíma frá 15. febrúar til 28. mars 2024 og skal þeim skilað gegnum skipulagsgáttina.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar