Reynivellir Efribær

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. júní 2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reynivalla, Efribæjar, í Suðursveit í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagið var áður auglýst frá 24. febrúar til 11. apríl 2022 en ekki náðist að ljúka skipulagsferlinu innan árs frá því auglýsingartíma lauk og því er skipulagið auglýst að nýju.

Skipulagið er aðgengilegt í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. skila skal athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum skipulagsgáttina. 

Umhverfis- og skipulagsstjóri