Seljavellir 2 í Nesjahverfi

Skipulagslýsing - Breyting aðalskipulags og nýtt deiliskipulagill

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 25. október 2022 að kynna skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012 -2030 skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og nýs deiliskipulags skv. 1. mgr. 40. gr. sömu laga.

Skipulagsáætlunirnar ná til hluta Seljavalla 2 í Nesjahverfi og gera ráð fyrir að heimilað verði að reisa hótel og allt að 20 stakstæð hús til útleigu á verslunar og þjónustusvæði, fyrir alls 200 næturgesti.

Skipulagslýsingin er aðgengileg hér .

Athugasemdarfrestur er til 8. nóvember 2022 og skal þeim skilað gegnum netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar