Tillaga að deiliskipulag skotsvæði

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir skotsvæði. Hljóðvistargreining fyrir skotæfingasvæði og hljóðvistargreining fyrir skotæfingasvæði og motor crosssvæði

Markmið með gerð deiliskipulagsins er að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og tryggja fjölbreytni og möguleika til skipulegra skotæfinga. Ennfremur að koma upp góðu skotíþróttasvæði, fyrir þann fjölda iðkenda sem stundar þetta sport, þannig að hægt sé að stunda íþróttina á öruggu svæði þar sem gert er ráð fyrir ströngum öryggiskröfum og umhverfissjónarmiðum. Meginmarkmiðið er að byggja upp aðstöðu sem fullnægir öryggiskröfum á svæði þar sem hægt er að stunda alþjóðlegar greinar skotíþrótta sem stundaðar eru með skotvopnum. Svæðið mun auka fjölbreytni íþrótta- og afþreyingamöguleika í sveitarfélaginu. 

 

Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð verðurtil kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, 780 Höfn, frá 11. apríl 2017 til 26. maí 2017.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11. apríl og skal skila skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsstjóri

 

 

 

 

 

til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, 780 Höfn og á heimasíðu sveitarfélagsins hornafjordur.is/stjórnsysla undir skipulag í kynningu, frá 11. apríl 2017 til 26. maí 2017.

 

Skipulags- og matslýsing vegna Aðalskipulagsbreytinga 2012-2030 verður til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, 780 Höfn og á heimasíðu sveitarfélagsins hornafjordur.is/stjórnsysla undir skipulag í kynningu, frá 11. apríl 2017 til 3. maí 2017.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum kemur fram að ofan og skal skila skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsstjóri