Tillaga að deiliskipulagi fyrir Moto-cross

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 12. október 2017 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Moto-cross 

Markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og tryggja fjölbreytni og möguleika til skipulegra æfinga. Ennfremur að færa starfsemi sem veldur hávaðamengun fjær byggðinni. Meginmarkmiðið er að byggja aðstöðu sem fullnægir öryggiskröfum og skapi ekki óþægindi fyrir íbúa sveitarfélagsins. 

Deiliskipulagstillagan ásamt greinargerð verðurtil kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, 780 Höfn, frá 19. október 2017 til 1. desember 2017.

Deiliskipulagstillaga  

Hljóðvistargreingin

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 1. desember 2017 og skal skila skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Gunnlaugur Róbertsson, skipulagsstjóri