Tillaga að heildarendurskoðun deiliskipulags í Skaftafelli
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 12. febrúar 2026 að auglýsa tillögu að heildarendurskoðun deiliskipulags í Skaftafelli í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða nýtt deiliskipulag í Skaftafelli sem fellir hið fyrra úr gildi. Ekki er um að ræða róttæka breytingu á fyrirkomulagi mannvirkja og aðstöðu. Skerpt er á stefnumörkun um ýmis atriði en helstu breytingar felast í rýmkuðum byggingarreit fyrir gestastofu og breyttu fyrirkomulagi starfsmannaíbúða í Sandaseli. Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt, mál nr. 1277/2025 .
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna á auglýsingatíma frá og með 13. febrúar til 20. apríl 2026 og skal þeim skilað í gegnum skipulagsgáttina.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar
