Seyrusöfnun í dreifbýli sveitarfélagsins Hornafjarðar

Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið "Seyrusöfnun í dreifbýli sveitarfélagsins Hornafjarðar, og úr líffræðilegum skólphreinsistöðvum í eigu sveitarfélagsins, og sambærilegan úrgang frá öðrum þróm í eigu sveitarfélagsins " eins og því er lýst í meðfylgjandi rammasamningsútboðsgögnum.

Hér er um rammasamningsútboð að ræða um þjónustu sem er undir viðmiðunarfjárhæðum um útboðsskyldu skv. reglugerð nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu og því gildir aðeins 16. gr. reglugerðarinnar.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Hreinsun skólps með rotþróm og í líffræðilegum skólphreinsistöðvum skilar seyru sem safnast upp í þar til gerðum þróm. Verkkaupi vill sjá til að eigendur heimila og frístundahúsa í dreifbýli í sveitarfélaginu Hornafirði standi til boða regluleg tæming á þrónum, einu sinni á hverjum þremur árum, og að tæmingin fari þannig fram sem minnst rask verði á örveruflóru hreinsivirkjanna.

Framkvæmdartími

Gildistími rammasamninga í kjölfar útboðsins verður þrjú ár.

Útboðsgögn

Útboðsgögn, dagsett í janúar 2026, og bera nafnið:

Rammasamningsútboð fyrir söfnun seyru á dreifbýlissvæðum í sveitarfélaginu Hornafirði og frá lífrænum fráveituhreinsistöðvum í eigu sveitarfélagsins, ásamt sambærilegum úrgangi frá öðrum fráveitustöðvum í eigu sveitarfélagsins

og sundurliðast með eftirfarandi hætti:

  • Útboðslýsing og verklýsing gerð af sveitarfélaginu Hornafirði
  • Tilboðseyðublað ásamt tilboðsskrá
  • Ef við á, viðaukar, útgefnir innan tilboðsfrests

Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á xiaoling@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Rammasamningsútboð um seyrusöfnun í janúar 2026“ Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Rammasamningsútboð um seyrusöfnun í janúar 2026“

Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: xiaoling @hornafjordur.is og skal þá merkja “subject” reitinn: Rammasamningsútboð um seyrusöfnun í janúar 2026 – Fyrirspurn. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 5 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.

Skil og opnun tilboða

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en föstudaginn 30. janúar 2026 kl. 14:00.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði og verða þau opnuð samtímis í fundarsal Sveitarfélagsins á 3. hæð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir.

Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið xiaoling@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir: Xiaoling Yu xiaoling@hornafjordur.is