Útboð - Endurbætur í eldhúsi Hofgarði
Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Endurbætur í eldhúsi Hofgarði“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og er það skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Rif og förgun á núverandi eldhúsi og eldhústækjum. Rif á gólfefnum, veggjum, sögun á vegg milli eldhúss og uppvöskunarrýmis og fjarlæging á hlöðnum vegg, sögun á gólfum fyrir nýjar fráveitu- raf- og gólfhitalagnir. Rif á hurð og lúgu milli eldhúss og salar.
Nýr milliveggur til hólfunar á geymslu, ný gólfefni og hljóðvistarloft. Uppsetning á nýrri eldhúsinnréttingu og eldhústækjum ásamt uppvöskunarlínu. Nýjar hillur og rekkar. Nýjar lagnir s.s. raflagnir, fráveitulagnir, vatnslagnir og hitalagnir í gólf. Settur verður nýr útsogsháfur með tilheyrandi útkast- og inntaks ristum á þaki og frágangi og þéttingum á þeim.
Um er að ræða rif og fullnaðar frágang á eldhúsi og tengdum rýmum eins og tilboðsgögnin gera ráð fyrir.
Helstu stærðir eru:
Nettóstærð eldhúss er um 36 m2, nettóstærð geymslu er um 6 m2.
Framkvæmdartími
Framkvæmd skal hefjast strax eftir undirritun samnings og vera að fullu lokið 30. september 2026.
Útboðsgögn
Útboðsgögn bera nafnið: „Endurbætur í eldhúsi Hofgarði“ og sundurliðast eftirfarandi:
- Aðalteikningar gerðar af ASK arkitektum. (ekki með en verður mögulega bætt við síðar)
- Verklýsingar og verkteikningar, gert af ASK Arkitektum ehf.
- Verklýsingar og verkteikningar, gert af Verkhof ehf.
- Verklýsingar og verkteikningar, gert af Vattará ehf.
- Eldri teikningar eftir því sem til er, tekið saman til upplýsingar
- Samantektarblað ásamt Tilboðsskrá
- Form verksamnings.
- Form verktryggingar.
Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Endurbætur í eldhúsi Hofgarði“ Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Endurbætur í eldhúsi Hofgarði“ Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: ossur@ask.is og bjorni@hornafjordur.is og skal þá merkja “subject” reitinn: Endurbætur í eldhúsi Hofgarði - FYRIRSPURN. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.
Skil og opnun tilboðs.
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en 29. maí 2026 kl. 14:00. merktu: Endurbætur í eldhúsi Hofgarði - Tilboð.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði og verða þau opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir.
Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Nánari upplýsingar veitir: Björn Imsland, bjorni@hornafjordur.is sími 470-8000
