Verðkönnun - sviðsljós

7.5.2026

Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt kaupandi, óskar eftir tilboðum í kaup á sviðsljósum fyrir fjölnota viðburðarhús Sindrabæ eins og því er lýst í gögnum. Hér er um verðkönnun að ræða. 

Innifalið í tilboði skal eingöngu vera sviðsljós ásamt viðeigandi búnaði þess er kemur fram í tæknilýsingu afhent til flutnings aðila innanlands sem kaupand óskar eftir.

Innkaup þessi nefnast: „ Sindrabær Sviðsljós “.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Sindrabær er samkomu- og menningarhús sveitarfélagsins Hornafjarðar. Húsið var byggt árið 1955 og hafa undanfarin ár verið gerðar gagngerar endurbætur á því.

Verðkönnun þessi felur í sér innkaup á Sviðsljósum fyrir Sindrabæ. Sviðsljósin eru fyrir svið í fjölnota sal með svölum sem hægt er að nýta sem sér rými, ásamt anddyri. Þar er upp komið hljóðkerfi fyrir lifandi uppákomur, þ.m.t. hljóðmixer, ráarkerfi, myndvarpi og fjarfundarbúnaður.

Innkaup

  • Útvegun á Sviðsljósum skv. tæknilýsingu og tilboðsskrá.
  • Afhendingartími – vöru 26. Júní 2026.

Verðkönnun gögn

Verðkönnun, dagsett í Apríl 2026, og bera nafnið: „Sindrabær Sviðsljósog sundur liðast svo:

  1. Verðkönnun
  2. Tæknilýsing
  3. Magnskrá og Tilboðseyðublað

Gögnin fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send gögn í innkaup „Sindrabær SviðsljósÞá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts Sindrabær SviðsljósFrekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: utbod@hornafjordur.is og bjorni@hornafjordur.is og skal þá merkja “subject” reitinn: Sindrabær Sviðsljós - FYRIRSPURN. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3. dögum fyrir opnunardag tilboðs.

Skil og opnun tilboðs.

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en 28. maí 2026 kl. 14:00. merktu: Sindrabær Sviðsljós - Tilboð.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði.

Það verður ekki haldinn eiginlegur opnunarfundur þar sem bjóðendur geta verið viðstaddir. Allir bjóðendur fá senda tilkynningu um að opnun hafi farið fram og fá senda opnunarskýrslu á netfang sitt.

Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.


Nánari upplýsingar veitir: Björn Imsland, bjorni@hornafjordur.is sími 470-8000