Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 959

Haldinn í ráðhúsi,
15.09.2020 og hófst hann kl. 14:30
Fundinn sátu: Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður,
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður,
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður,
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi,
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri, Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Bryndís Bjarnarson, stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi


Dagskrá: 
Fundargerð
1. 2008009F - Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 322
Fundargerð samþykkt.
 
Gestir
Erla Bjög Sigurðardóttir félagsmálastjóri
Almenn mál
2. 202003078 - Staða sveitarsjóðs 2020
Staða sveitarsjóðs lögð fram, eðlilega gengur að innheimta fasteignagjöld.
3. 202009026 - Íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins
Fyrir málinu liggur skýrsla um samsetningu íbúðarhúsnæðis í eigu sveitarfélagsins og greining á leiguverði, fyrirkomulagi í bókhaldi o.fl. Starfsmaður KPMG mun fylgja málinu eftir og kynna skýrsluna.

Guðmundur kynnti skýrsluna. Vísað til félagsmálanefndar.
 
Gestir
Guðmundur Pálsson frá KPMG
4. 202005031 - Ráðning umhverfis- og skipulagsstjóra
Fyrir málinu liggur úrskurður Kærunefndar jafnréttismála.

Niðurstaða úrskurðar er kæranda í vil þar sem kærunefndin segir að ekki hafi tekist að sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið fyrir til grundvallar ákvörðunar um ráðningu í starf umhverfis- og skipulagsstjóra.
5. 202009045 - Álagningarreglur 2021
.

Lagt fram til umræðu.
sudurland-stodugreining-2019-2020-loka.pdf
Beiðni sveitarstjórnarráðherra vegna fasteignaskattsálagningar árið 2021.pdf
6. 202009029 - Ósk eftir viðbótarstyrk: Minigolf
Erindi frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 500 þúsund til að stækka minigolfvöll sem byggður var í vor.

Bæjarráð samþykkir að veita styrk til efniskaupa fyrir tvær minigolfbrautir til viðbótar til að ljúka verkefninu að hámarki 500 þúsund kr.
Tekið af óráðstöfuðu.
7. 202009010 - Eldvarnastefna Sveitarfélags Hornafjarðar
Ný eldvarnarstefna sveitarfélagsins lögð fram.
Markmið með eldvarnarstefnunni er að auka skilning og öryggi starfsmanna, skjólstæðinga og viðskiptavina með það að leiðarljósi að draga úr líkum á tjóni á rekstri og eignum og viðhalda fjárfestingu sem liggur í eldvarnarbúnaði.


samþykkt.
Eldvarnastefna Sveitarfélags Hornafjarðar.pdf
8. 202009044 - Þróun íbúafjölda í sveitarfélaginu
Lagt fram til kynningar.
Hreyfingaskrá 2020.pdf
Staða erlendra ríkisborgara ágúst 2020 nýtt.pdf
9. 202009043 - Stafrænt ráð sveitarfélaga á Suðurlandi
Erindi frá SASS og Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið takið þátt í miðlægu samstarfi sveitarfélaga um stafræna þróun og nýtingu á nútímatækni til að bæta þjónustu við íbúa.
Lagt er til að sveitarfélög innan SASS skipi í faghóp um stafræna þróun. Erindisbréf fyrir stafrænan faghóp lagt fram.


Lagt fram til kynningar, vísað til starfsmanna að tilnefna í ráðið.
10. 202009030 - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
Erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.

Lagt fram til kynningar.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.pdf
11. 202009039 - Kynning á verkefnum - Sinfóníuhljómsveit Suðurlands
Erindi frá Sinfóníuhljómsveit Suðurlands þar sem kynnt eru verkefni og tónleikar á næstu misserum.

Lagt fram til kynningar.
Kynning á verkefninu Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.pdf
12. 202009037 - Áskorun - félag íslenskra handverksbrugghúsa
Erindi frá Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa þar sem skorað er á dómsmálaráðherra að leggja fram frumvarp um netverslun um áfengi fram á nýjan leik til að tryggja íslenskum handverksbrugghúsum rétt til að selja gestum sínum vörur á staðnum.

Lagt fram til kynningar.
Askorun a raðherra, þingmenn og sveitarstjo_rnarfo_lk.pdf
13. 202009038 - Fjármálaráðstefna 2020
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til fjármálaráðstefnu dagana 1. og 2. október. Ráðstefnan er með breyttu sniði í ljósi aðstæðna og verður send út á netinu tvo tíma hvorn dag.

Lagt fram til kynningar.
Fjármálaráðstefna.pdf
14. 202009036 - Ársþing SASS 2020
Starfsmanni falið að senda kjörbréf til SASS.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:40 

Til baka Prenta