Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1218

Haldinn í ráðhúsi,
28.04.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Eyrún Fríða Árnadóttir formaður,
Gauti Árnason varaformaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jóna Benný Kristjánsdóttir, Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2604011F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 87
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar nr. 87 lögð fram.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
 
Gestir
Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Almenn mál
2. 202604097 - Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagður fram.

Bæjarstjórn var boðuð á fundinn og mætti undir þessum dagskrárlið þar sem Sigurjón Örn Arnarson og Marteinn Gauti Kárason, löggiltir endurskoðendur frá KPMG, fóru yfir ársreikning sveitarfélagsins.

Rekstrartekjur á árinu námu 4.744 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 4.276 millj. kr.

Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,37% en lögbundið hámark þess er 0,625% með álagi. Í B-flokki var álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki var álagningarhlutfallið 1,65% en lögbundið hámark með álagi er 1,65%.

Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 535 millj. kr., og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 388 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 7.728 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam um 6.425 millj. kr.

Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2025 er tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.


Bæjarráð þakkar vandaða yfirferð og samþykkir samhljóða árseikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025.

Bæjarráð vísar ársreikningi sveitarfélagsins til afgreiðslu og fyrri umræðu bæjarstjórnar.
Ársreikningur Hornafjarðar 2025_drög.pdf
Samstæðu, málaflokka- og deildayfirlit Hornafjarðar 2025_drög.pdf
 
Gestir
Sigurjón Örn Arnarson, endurskoðandi
Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri
Gunnar Ásgeirsson, bæjarstjórn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir, bæjarstjórn
Gunnhildur Imsland, bæjarstjórn
Marteinn Gauti Kárason, endurskoðandi
Hjördís Edda Olgeirsdóttir, bæjarstjórn
3. 202604018 - Kaup á eignaumsjónarkerfi
Óskað er eftir heimild til að fjárfesta í eignaumsjónarkerfi fyrir sveitarfélagið. Kostnaður er 3,1 milljónir og yrði honum mætt með tilfærslum í fjárhagsáætlun.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til fjármálastjóra til viðaukagerðar.

 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri
4. 202503079 - Hönnun Ekra- endurbætur viðbygging
Tilboð sem barst í endurbætur við Ekru var hærra en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Gert var ráð fyrir kostnaði upp á 30 milljónir en tilboð hljóðar upp á 32,8 milljónir. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs fyrir að senda málið til viðaukagerðar þar sem umframkostnaði yrði mætt með tilfærslum í fjárhagsáætlun.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til fjármálastjóra til viðaukagerðar.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri
5. 202604093 - Erindi til bæjarráðs: Krafa um afhendingu upplýsinga
Erindi frá Sveinbirni Imsland þar sem óskað er svara bæjarráðs við spurningum í níu liðum auk þess sem upplýst er um að kæra hafa verið send til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna ósvaraðra gagnabeiðna.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur sent sveitarfélaginu erindi um kæru vegna þessa máls. Nefndin hefur gefið sveitarfélaginu tækifæri til að verða við beiðni kæranda um afhendingu gagna eða senda afstöðu sveitarfélagsins til kærunnar fyrir 8. maí næstkomandi. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs , í samvinnu við fjármálastjóra og persónuverndarfulltrúa er falið að taka afstöðu til þess sem fram kemur í bréfi úrskurðarnefndarinnar.

Bæjarráð felur fjármálastjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að afla gagna þar sem það á við svo hægt sé að svara erindinu í heild sinni.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri
6. 202603085 - Skólamáltíðir útboð 2026
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs leggur fram eftirfarandi gögn og óskar heimildar bæjarráðs til að fara í útboðsferli vegna skólamáltíða.

Tilboðið verður auglýst á útboðsvefnum og TED.


Bæjarráð veitir heimild til að hefja útboðsferli.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Þórgunnur Torfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
7. 202604033 - Aukið samstarf Grunnskólans í Hofgarði við Grunnskóla Hornafjarðar
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs leggur fram uppfært minnisblað um aukið samstarf Grunnskólans í Hofgarði við Grunnskóla Hornafjarðar.

Lagt fram til kynningar.
 
Gestir
Þórgunnur Torfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
8. 202507034 - Beiðni um fjárstyrk vegna uppsetningar farsímamasturs í Dalsnúp Þórisdal
Erindi frá Félagi sumarhúsaeigenda í Stafafellsfjöllum:

1. Óskað er eftir formlegri afgreiðslu bæjarráðs á styrkbeiðni FSS frá 7. júlí 2025, sem vísað var til Mannvirkjasviðs 15. júlí 2025 án þess að formleg niðurstaða hafi borist félaginu.

2. Lögð er fram tillaga að tveggja áfanga lausn sem þjónar bæði FSS-svæðinu og Laxárdal, nýtir samlegð við yfirstandandi framkvæmdir RARIK í Lóni sumarið 2026 og gerir mastrinu kleift að rísa á þessu ári


Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að leita álits lögmanns og fá leiðbeiningar hjá Fjarskiptastofu um framhald málsins.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
9. 202604084 - Umsókn um lóð - Borgartún 5
Straumhvarf ehf. sækir um lóðina Borgartún 5 í Öræfum til þess að byggja á henni raðhús fyrir starfsfólk Arctic Adventures og fjölskyldur þeirra. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði framtíðarhúsnæði starfsfólksins.

Straumhvarf ehf. hyggst fjármagna lóðina og framkvæmdina með eigið fé og fylgir ársskýrsla fyrirtækisins með sem fylgiskjal ásamt umsókninni.


Bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutuninni og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir, verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
10. 202507070 - Ósk um lóðarvilyrði - Álaugarvegur 13 og 15
Umsækjandi hefur tilkynnt að hann falli frá beiðni um lóðarvilyrði að Álaugarvegi 13 og 15.

Lagður er fram tölvupóstur frá umsækjanda.


Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá áformum um gerð samnings um lóðarvilyrði fyrir lóðirnar að Álaugarvegi 13 og 15.

 
Gestir
Guðrún Agða Aðalheiðardóttir, verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála
Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
11. 202604099 - Umsögn um mál frá nefnda- og greiningasviði Alþingis.595.mál - loftslagslög
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 595. mál - Loftslagslög.

Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí nk.


Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að leggja fram drög að umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.
12. 202604098 - Aukahluthafafundur Leigufélagsins Bríetar ehf.
Leigufélagið Bríet boðar til aukahluthafafundar í dag, þriðjudaginn 28. apríl 2026, kl. 13:30.

Fyrir fundinum liggur m.a. tillaga um breytingu á samþykktum.


Lagt fram til kynningar.
13. 202604063 - Sjálfboðaliðar vegna jöklaleiðar
Verkefnastjóri umhverfis- og skipulagsmála óskar eftir heimild til að fá sjálboðaliða til að vinna við jöklaleiðina í eina til tvær vikur sumarið 2026.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að veita heimild ef fjármagn væri til fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun.

Málið var tekið fyrir og samþykkt með framangreindum fyrirvara í tölvupósti, dags. 22. apríl 2026.



Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:15 

Til baka Prenta