|
Fundinn sátu: Gauti Árnason aðalmaður, Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður, Skúli Ingólfsson aðalmaður, Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður, Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður, Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 1. varaforseti, Gunnar Ásgeirsson 1. varamaður, Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Tjörvi Óskarsson Deildarstjóri upplýsingatæknideildar. |
|
Fundargerð ritaði: Jóna Benný Kristjánsdóttir, Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs |
|
|
|
| 1. 202604097 - Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025 |
Bæjarstjóri lagði ársreikning Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2025 fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn og fór yfir helstu atriði hans.
Rekstrartekjur á árinu námu 4.744 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 4.276 millj. kr.
Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,37% en lögbundið hámark þess er 0,625% með álagi. Í B-flokki var álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki var álagningarhlutfallið 1,65% en lögbundið hámark með álagi er 1,65%.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 535 millj. kr., og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 388 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 7.728 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam um 6.425 millj. kr.
Ársreikningurinn hefur fengið kynningu í bæjarráði að viðstöddum fulltrúum úr bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkti ársreikninginn og vísaði til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Hjördís Edda Olgeirsdóttir til andsvars.
Mál tekið fyrir á 5:00 mínútu.
|
Forseti lagði til að ársreikningi 2025 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
| Ársreikningur Hornafjarðar 2025_drög.pdf |
| Samstæðu, málaflokka- og deildayfirlit Hornafjarðar 2025_drög.pdf |
|
|
|
| 2. 202603035 - Sveitarstjórnarkosningar 2026 |
Með vísan til 17. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 112/2021 er lögð fram tillaga að skipan undirkjörstjórna í fjórum kjördeildum í Sveitarfélaginu Hornafirði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.
Lagt er til að eftirtaldir aðilar verði kosnir í undirkjörstjórnir:
Suðursveit - Hrollaugsstaðir: Steinþór Torfason Jóna Ingólfsdóttir Jón Sigfússon Varamenn: Arnór Már Fjölnisson Birna Þrúður Sigurbjörnsdóttir Friðrik Hrafn Reynisson
Höfn, Nes og Lón - Heppuskóli: Bartek Andresson Kass Hafdís Hafsteinsdóttir Laufey Sveinsdóttir Varamenn: Sigríður Kristinsdóttir Þorbjörg Helgadóttir Borgþór Freysteinsson
Mýrar - Holt: Arndís Lára Kolbrúnardóttir Barði Erling Barðason Katrín Haraldsdóttir Varamenn: Anna María Kristjánsdóttir Sigurður Guðmundsson Ingunn Ingvarsdóttir
Öræfi - Hofgarður: Pálína Þorsteinsdóttir Hólmfríður Guðlaugsdóttir Sigurður Gunnarsson Varamenn: Bjarni Sigurður Grétarsson Þorsteinn Óskarsson Einar Páll Ingimundarson
Gunnar Ásgeirsson tók til máls.
Mál tekið fyrir á 24:15 mínútu.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að kjósa framangreinda aðila í undirkjörstjórnir í samræmi við 17. gr. laga nr. 112/2021 um kosningar til Alþingis.
Tillagan var borin upp í heild sinni og samþykkt með sjö atkvæðum.
|
|
|
|
| 3. 202604084 - Umsókn um lóð - Borgartún 5 |
Straumhvarf ehf. sækir um lóðina Borgartún 5 í Öræfum til þess að byggja á henni raðhús fyrir starfsfólk Arctic Adventures og fjölskyldur þeirra. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði framtíðarhúsnæði starfsfólksins.
Straumhvarf ehf. hyggst fjármagna lóðina og framkvæmdina með eigið fé og fylgir ársskýrsla fyrirtækisins með sem fylgiskjal ásamt umsókninni.
Mál tekið fyrir á 26:50 mínútu.
|
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðarúthlutunina. Tillagan borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum. |
|
|
|
| 4. 202303123 - Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
Á síðasta fundi bæjarstjórnar var málið tekið fyrir en fyrir fórst að leggja fram Skipulagsuppdrátt 1 Öræfi A1609-181-U02 með öðrum fundargögnum. Málið var því aftur lagt fyrir og samþykkt samhljóða af bæjarstjórn í tölvupósti, dags. 16. apríl 2026.
Lögð er fram tillaga að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040, dags. 9.4.2026, sem samanstendur af þessum skjölum: Skipulagsgreinargerð A1609-180-U06 með sýnil. br. eftir umsögn Skipul.st. Forsendu- og umhverfismatsskýrsla A1609-179-U06 með sýnil. br. eftir umsögn Skipul.st. Skipulagsuppdráttur 1 Öræfi A1609-181-U02 Skipulagsuppdráttur 2 Suðursveit og Mýrar A1609-182-U02 Skipulagsuppdráttur 3 Nes og Lón A1609-183-U02 Skipulagsuppdráttur 4 Höfn og Nesjahverfi A1609-184-U02 Skipulagsuppdráttur 5 Fjalllendi A1609-185-U02 Þemauppdráttur um náttúruvernd A1609-186-U02 Einnig liggur fyrir aðalskipulagsvefsjá, https://geo.alta.is/hornafjordur/ask/ sem sýnir landnotkunarreiti tillögunnar í samhengi við ýmis grunngögn.
Bæjarstjórn samþykkti að auglýsa framlagða tillögu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.
Mál tekið fyrir á 27:30 mínútu.
|
| Lagt fram til kynningar. |
| A1609-181-U04 S1 Öræfi.pdf |
| Viðauki við forsendu og umhverfismatsskýrslu v Byrgis í Borgarhöfn í Suðursveit.pdf |
| A1609-215-U01 Svör við umsögn Skipulagsstofnunar um tillögu til auglýsingar.pdf |
| A1609-186-U02 Þemauppdráttur um náttúruvernd.pdf |
| A1609-185-U02 S5 Fjalllendi.pdf |
| A1609-184-U03 S4 Höfn og Nesjahverfi.pdf |
| A1609-183-U02 S3 Nes og Lón.pdf |
| A1609-182-U03 S2 Suðursveit og Mýrar.pdf |
| A1609-180-U06 SKIPULAGSGREINARGERD augl.tillaga til afgr nefndar 8.4. og bæjarstj 9.4.2026 m sýnil breyt frá tillögu til ath Sk.pdf |
| A1609-179-U06 FORSENDU- OG UMHVERFISMATSSKYRSLA auglýsingartillaga t afgr nefndar 8.4. og bæjarstj 9.4.2026 m sýnil breyt frá tillögu til ath Skst.pdf |
| A1609-172-U01 Gistirúm skv. tillögu að nýju aðalskipulagi og rekstrarleyfum feb 2026.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30 |