|
|
| 1. 2602017F - Ungmennaráð Hornafjarðar - 110 |
Fundargerð ungmennaráðs lög fram.
|
| Fræðslunefnd samþykkir fundargerð ungmennaráðs. |
|
| |
| Gestir |
| Emil Morávek verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviði. |
|
|
|
|
| 2. 202602162 - Sumarfrístund 2026 |
Í framhaldi af uppsögn umf. Sindra á þeim hluta þjónustusamnings sem snýr að íþrótta- og frístundaskóla (leikjanámskeiðum) hefur starfsfólk á fræðslu- og frístundasviði unnið að kynningu á Sumarfrístund og mun halda því áfram næstu vikurnar. Lögð er áhersla á að félagasamtökum og stofnunum gefist í tengslum við þessar breytingar aukið tækifæri á að kynna starfs sitt um leið og framboð af námskeiðum fyrir börn verði fjölbreyttara og eftirsóknarverðara.
|
Sveitarfélagið mun nýta þá upphæð sem áætluð var í námskeiðin til að greiða þeim sem bjóða upp á námskeið vissa upphæð fyrir hvert tímabil og með því móti er vonast til að fá sem flesta að borðinu. Þá mun sveitarfélagið líkt og áður sjá um stuðning við börn með fötlun og bjóða fram aðstoð ungmenna úr vinnuskólanum á námskeiðum sem eru fjölmenn eða þarfnast auka stuðnings.
Fræðslu- og frístundanefnd hvetur sem flest félagasamtök til að taka þátt í Sumarfrístund og bjóða upp á námskeið, ein og sér eða í samstarfi við aðra. |
|
| |
| Gestir |
| Emil Morávek verkefnastjóri á fræðslu- og frístundasviði. |
|
|
| 3. 202601169 - Skóladagatöl leik- og grunnskólans í Hofgarði |
Skóladagatal leik- og grunnskólans í Hofgarði lagt fram.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd frestar afgreiðslu skóladagatala til næsta fundar. |
| Leikskoladagatal-Hofgarður_2026-2027.pdf |
| skoladagatal_HOFGARDUR_2026_2027.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Áróra Gústafsdóttir skólastjóri á teams. |
|
|
| 4. 202601168 - Skóladagatal Tónskóla A-Skaft 2026-2027 |
Skóladagatal Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu lagt fram.
|
Fræðslu- og frístundanefnd frestar afgreiðslu máls til næsta fundar.
|
|
| |
| Gestir |
| Jóhann Morávek skólastjóri Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu |
|
|
| 5. 202601167 - Skóladagatal Leikskólans Sjónarhóls 2026-2027 |
Skóladagatal Leikskólans Sjónarhóls fyrir skólaárið 2026-2027 lagt fram.
|
Fræðslu- og frístundanefnd frestar afgreiðslu máls til næsta fundar.
|
| Leikskoladagatal-2026-2027.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Maríanna Jónsdóttir leikskólastjóri, Svava Kristín Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna og Kolbrún Rós Björgvinsdóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 6. 202603059 - Fagháskólanám í leikskólafræðum |
Námsleiðin fagháskólanám í leikskólafræði verður í boði við Háskóla Íslands haustið 2026 þar sem tekið verður á móti nýjum nemendahópi. Námið er 60 eininga grunndiplóma fyrir þau sem lokið hafa námsbraut fyrir leikskólaliða eða leikskólabrú á framhaldsskólastigi. Námsleiðin er sett upp sem hálft nám í tvö ár og dreifast námskeið sem eru kennd á fyrsta ári í B.Ed. náminu á tvö ár. Að námi loknu geta nemendur sótt um B.Ed. nám í leikskólakennarafræðum við HÍ og fá námið að fullu metið til eininga.
|
Starfsmenn leikskólans hafa þegar fengið póst um námsleiðina ásamt upplýsingum um að boðið verði upp á nám í leikskólaliðanum. Sækist starfsmenn eftir því að fara í nám sem nýtist í leikskólanum verður komið til móts við þá á leikskólanum skv. reglum um námsstyrk til starfsfólks leikskóla.
Fræðslu- og frístundanefnd fagnar því að starfsfólki leikskólans skuli bjóðast nám sem styrkir það í starfi og vonast til þess að starfsmenn muni sækjast eftir því að fara í nám. |
|
| |
| Gestir |
| Maríanna Jónsdóttir leikskólastjóri, Svava Kristín Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna og Kolbrún Rós Björgvinsdóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 7. 202602072 - Lengri opnun sundlaugar á þriðjudögum, tilraun í febrúar |
Starfsmenn Sundlaugar Hafnar gerðu tilraun með að hafa sundlaugina opna lengur einn dag í viku í febrúar. Fræðslunefnd óskaði eftir upplýsingum um mætingu með samanburði við síðasta ár.
|
| Samkvæmt samanburði var ekki mikill munur milli ára á mætingu. Það varð t.d. mun meiri fjölgun þegar helgaropnun var lengd um tvær klukkustundir. Þetta var skemmtilega tilraun hjá sundlauginni og þó það verði ekki opið áfram til 21:30 þá er aldrei að vita nema þetta verði prófað aftur. Þess má líka geta að Sundlaug Hafnar er með einna lengstan opnunartíma á landsbyggðinni. |
|
| |
| Gestir |
| Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar. |
|
|
| 8. 202603028 - Ársskýrsla FabLabs Hornafjarðar 2025 |
Sindri Örn Elvarsson forstöðumaður Vöruhúss fylgir Ársskýrslu FabLabs Hornafjarðar úr hlaði.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd þakkar Sindra fyrir greinargóða skýrslu. |
| Ársskýrsla 2025 - Fab Lab Hornafjörður.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Sindri Elvarsson forstöðumaður Vöruhúss |
|
|
| 9. 202601166 - Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar 2026-2027 |
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar fyrir veturinn 2026-2027 lagt fram.
|
Fræðslu- og frístundanefnd óskar eftir því að kanna hug nemenda og foreldra til þess að sameina vetrarfríin í eitt fyrir áramót og frestar ákvörðun um skóladagatöl til næsta fundar. Sviðsstjóra falið að senda út könnun til nemenda og foreldra.
|
| Grunnskoladagatal-2026-2027.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Þórdís Þórsdóttir skólastjóri, Halldóra Guðmundsdóttir fulltrúi kennara og Inga Rósa Ingvadóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 10. 202602146 - Vinnslusamningur vegna Nemendagrunns og MÁP |
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur undirritað vinnslusamning við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) vegna Nemendagrunns að undangengnu mati á persónulegum áhrifum. Öll börn á landinu munu hér eftir innritast í grunnskóla í gegnum Nemendagrunn og haldið verður utan um ýmis sameiginleg atriði þar, flutning á milla skóla og fleira. Innritun barna í 1. bekk í Austur- Skaftafellssýslu mun hefjast um miðjan apríl og fer hún í gegnum Nemendagrunn á Island.is. Fyrirkomulag innritunar verður auglýst þegar nær dregur. Mál lagt fram til kynningar.
|
|
| |
| Gestir |
| Þórdís Þórsdóttir skólastjórr, Halldóra Guðmundsdóttir fulltrúi kennara og Inga Rósa Ingvadóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 11. 202603020 - Matsferill og birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærfræði og lesfimi |
Í gegnum Nemendagrunn (mál nr. 9) verður haldið utan um þær upplýsingar sem Matsferill veitir en Matsferill er nýtt samræmt matstæki sem kemur í stað samræmdra prófa og metur lesfimi, lesskilning og stærðfræði. Fyrsta fyrirlögn matsferils í lesskilningi og stærðfræði er núna í mars en lesfimipróf hafa verið lögð fyrir í nokkur ár. Skylda er að leggja Matsferil fyrir í 4., 6. og 9. bekk en frjálst að leggja hann fyrir í 5., 7., 8. og 10. bekk.
Í reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmds námsmats í grunnskólum frá 25. febrúar 2026 kemur fram að niðurstöður prófanna verði birtar opinberlega og hafa niðurstöður lesfimiprófanna þegar verið birtar fyrir hvert sveitarfélag https://www.stjornarradid.is/verkefni/menntamal/adgerdir-i-menntamalum/birting-a-namsframvindu-barna/.
|
Fyrirlögn prófanna í Grunnskóla Hornafjarðar hefur gengið ágætlega. Sú ákvörðun að birta niðurstöður opinberlega er umdeild en fræðslu- og frístundanefnd telur mikilvægt er að horfa til þess að nýta niðurstöður mats sem birt er opinberlega á jákvæðan hátt og nota þær skólum til framdráttar. Niðurstöður Matsferils eiga að nýtast vel til að rýna í kennsluhætti og skólastarf og vinna að útbótum. Í lesfiminiðurstöðum síðustu ára sést að nemendur í Sveitarfélaginu Hornafirði hafa verið að koma ágætlega út og eiga góða möguleika á að vera meðal þeirra bestu á landinu.
|
|
| |
| Gestir |
| Þórdís Þórsdóttir skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar, Halldóra Guðmundsdóttir fulltrúi kennara og Inga Rósa Ingvadóttir fulltrúi foreldra |
|
|
| 12. 202512092 - Reiknilíkan fyrir úthlutun fjármagns í leik- og grunnskóla |
Sveitarfélagið Hornafjörður ásamt fleiri sveitarfélögum og með aðstoð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga stefnir að því að innleiða reiknilíkan fyrir úthlutun fjármagns í grunnskólum á næstu mánuðum. Tilgangur þess er að vera með gegnsærri og samanburðarhæfari upplýsingar um það hvað liggur að baki úthlutunar fjármagns til grunnskóla.
Upphaf þessa máls má rekja til úttektar Evrópumiðstöðvar á skóla án aðgreiningar á Íslandi sem kynnt var 2017. Þar er m.a. lagt til að "Til að tryggja góðan árangur af framkvæmd markaðrar stefnu á öllum stigum kerfisIns verði teknar upp sveigjanlegar reglur um ráðstöfun fjármuna sem auka hæfni kerfisins til að vinna að menntun án aðgreiningar.“ (Evrópumiðstöð, 2017, bls. 125) Meginatriði tillögunnar var að reglum um fjárframlög yrði breytt þannig að horfið væri frá viðbragðsmiðuðum stuðningi og þess í stað lögð áhersla á snemmtækan stuðning og forvarnir til þess að auka hæfni kerfisins til að starfa á grundvelli jafnaðar, skilvirkni og hagkvæmni.
Rekstur leik- og grunnskóla er stærsti rekstrarþáttur sveitarfélaga og um leið og það er mikilvægt að þessar stofnanir skili gæðastarfi þá er líka mikilvægt að rekstur þeirra sé hagkvæmur og fjármunum sé varið í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins. Reiknilíkan það sem nú á að taka upp er ein niðurstaða áralangrar vinnu í þá átt að aðstoða sveitarfélög við að meta hvort verið sé að nýta fjármuni á hagkvæman hátt með gæðastarf og farsæld barna í huga.
Fyrst í stað verður reiknilíkanið notað fyrir grunnskóla en stefnt að því að það verði síðan einnig notað fyrir leikskóla. Líkanið verður notað í þéttu samstarfi við skólastjórnendur.
Mál lagt fram til kynningar.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd fagnar því að búið sé að hanna reiknilíkan sem aðstoðar sveitarfélög við að halda utan um starfsmannahald í leik- og grunnskólum. Þetta eru stærstu vinnustaðir sveitarfélaga og þeir mikilvægustu og um leið og nefndin styður við gæðastarf í skólum þá telur hún líka miklvægt að gæta hagræðis og gæta þess að fjármagn fari á þá staði í skólakerfinu þar sem þeir nýtast best. |
|
|
|
| 13. 202502064 - Heillaspor |
Námskeið í Heillasporum þann 11. mars s.l. sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stóð fyrir markaði formlegt upphaf af innleiðingu Heillaspora í skóla og frístundaþjónustu sveitarfélagsins. Rúmlega eitt hundrað starfsmenn frá fræðslu- og frístundasviði sóttu námskeiðið. Heillaspor (e.Nurture) er heildræn nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi. Umgjörð Heillaspora byggir á leiðum til að skapa tengslamiðað og öruggt skólasamfélag þar sem börn njóta velferðar, taka virkan þátt, þroska sína innri hæfileika og styrkja stöðu sína í námi. Þegar börn upplifa öryggi og tengsl í skólanum verða þau líklegri til að tjá sig og segja frá því sem þau raunverulega þurfa á að halda, sérstaklega þau sem búa við félagslegar eða efnahagslegar áskoranir.
Leiðandi vörður Heillaspora sem eru sex eru styðjandi vegvísar að samþættum vinnubrögðum. Þær hvetja starfsfólk til að ígrunda eigin starfshætti, umhverfi, samskipti og viðhorf á dýptina. Vörðurnar leiða starfsfólk áfram í átt að dýpri þekkingu og skilningi á eigin viðbrögðum og á fjölbreyttum þörfum bæði barna og samstarfsfólks. Með sameiginlegri sýn á mikilvægu hlutverki og ábyrgð starfsfólks í að skapa fyrirsjáanleg og nærandi tengsl er stuðlað að þróun félags- og tilfinningaþroska barna. Sex vörður Heillaspora eru; - Nám tekur mið af þroska barns. - Umhverfið veitir stöðugleika og öryggi. - Hlýja og umhyggja eru mikilvæg fyrir vellíðan. - Samskipti byggjast á tjáningu. - Öll hegðun er tjáning. - Tímamót og breytingar hafa áhrif á daglegt líf barna.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd fagnar Heillasporum og óskar starfsfólki góðs gengis í innleiðingu. |
|
|
|
| 14. 202512009 - Verklagsreglur í farsæld |
Farið yfir drög að verklagsreglum í þágu farsældar barna í Sveitarfélaginu Hornafirði en unnið hefur verið að þeim í innleiðingarteymi farsældar í þéttu samráði við Barna og fjölskyldustofu (BOFS).
|
| Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir kynningu á reglunum. Í ágúst verður starfsfólk BOFS með vinnustofa um verklag í farsæld með tengiliðum, stjórnendum og starfsfólki í stoðþjónustu í skólunum. Að þeirri vinnustofu lokinni má ætla að verklagsreglurnar verði tilbúnar til birtingar. |
|
|
|
| 15. 202603005 - Farsældarráð Suðurlands |
Farsældarráð Suðurlands hefur tekið til starfa og hist einu sinni. Í því sitja 24 aðilar. Fulltrúar 15 sveitarfélaga á Suðurlandi ásamt fulltrúum frá framhaldsskólunum á svæðinu, HSU, lögreglunni á Suðurlandi og Vestmannaeyjum, svæðisstöðvum íþróttahéraða, foreldraráðum og ungmennaráðum.
Með lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna var ákveðið að komið skyldi á legg farsældarráðum í hverjum landshluta. Veitti mennta- og barnamálaráðuneytið fjármunum til að ráð verkefnastjóra í hvern landshluta til tveggja ára til að samhæfa og koma á fót svæðisbundnu farsældarráði í hverjum landshluta.
Þrír fulltrúar úr sveitarfélaginu Hornafirði sitja í ráðinu. Það eru Þórgunnur Torfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs f.h. sveitarfélagsins, Guðjón Ragnar Jónasson f.h. framhaldsskóla á Suðurlandi og Ágústa Margrét Arnardóttir f.h. foreldraráða á Suðurlandi.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd lýsir ánægju með stofnun farsældarráðs Suðurlands og óskar því góðs gengis. |
|
|
|
| 16. 202603026 - Skólamáltíðir útboð - Niðurstaða kærunefndar útboðsmála |
Í lok febrúar 2026 barst sveitarfélaginu bréf frá kærunefnd útboðsmála sem inniheldur niðurstöðu vegna kæru sem barst við útboð á skólamáltíðum vorið 2025 um að útboðið skyldi stöðvað vegna formsgalla. Í ljósi þess að ekkert tilboð barst hafnaði kærunefnd því í lok maí 2026 að stöðva skyldi útboðsferlið. Fjársýslan taldi þá að eðlilegt að sveitarfélagið leitað samninga um skólamáltíðir sem og var gert og samið var við Vigdísarholt um áframhaldandi framreiðslu á mat fyrir nemendur og starfsfólk Grunnskóla Hornafjarðar.
Í niðurstöðu kærunefndar sem barst 24. febrúar 2026 er lagt fyrir að útboðið hafi verið ógilt og auglýsa skuli nýtt útboð auk þess sem varnaraðila skuli greiddur málskostnaður.
Samningi við Vigdísarholt hefur því verið sagt upp frá og með næsta sumri og unnið er að nýju útboði.
Mál lagt fram til kynningar.
|
| Fræðslu- og frístundanefnd vonast til að útboðið geti gengið hratt fyrir sig svo hægt verði að tryggja skólamat fyrir nemendur Grunnskólans í tæka tíð. |
|
|
|
| 17. 202602044 - Fjölmenningarleg inngilding - Ósk um samstarf |
Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar og FAS um stuðning við fjölmenningarlega inngildingu lagður fram til kynningar.
|
|
|
|
| 18. 202402127 - Íþróttahús - hönnun |
46. og 47. fundargerð stýrihóps um íþróttamannvirki lagðar fram til kynningar og umræðu.
|
| 46.fundur 26.febrúar 2026.pdf |
| 47. fundur 5. mars 2026 -.pdf |
|
|
|