|
Fundinn sátu: Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður, Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður, Tinna Rut Sigurðardóttir formaður, Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður, Theódór Árni Stefánsson Fulltrúi ungmennaráðs, Þórdís Þórsdóttir 1. varamaður, Skúli Ingibergur Þórarinsson . |
|
Fundargerð ritaði: Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs |
|
|
|
| 1. 202602094 - Ársskýrsla 2025 |
Ársskýrsla velferðarsviðs 2025 lögð fram til kynningar.
Í skýrslunni er farið yfir helstu verkefni og tölfræði varðandi umfang þjónustunnar árið 2025. Fjölmörg verkefni voru unnin á árinu og má þar á meðal nefna metnaðarfulla framtíðarsýn í málefnum aldraðra fyrir árin 2026-2034, verkefni til eflingar fjölmenningar og inngildingar svo sem fjölmenningarbíó, framkvæmdaáætlun Barnaverndarþjónustu Fjarðarbyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar og þá var 2025 fyrsta árið þar sem akstursþjónusta aldraðra og fatlaðs fólks var formlega tekin í notkun.
Sviðsstjóri fer yfir ársskýrsluna, þau verkefni og umfang þjónustunnar eins og hún birtist í tölfræðinni.
|
Farið yfir ársskýrslu velferðarsviðs.
Velferðarnefnd lýsir yfir ánægju með starfsemi sviðsins og þakkar fyrir yfirferðina. Skýrslunni vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði. |
|
|
|
| 2. 202602191 - Sérstakur húsnæðisstuðningur 2026 |
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur uppfært leiðbeiningar um sérstakan húsnæðisstuðning og gert breytingar á viðmiðunarfjárhæðum vegna mats á áhrifum tekna (8. gr.) og vegna mats á áhrifum eigna. Fjárhæðir vegna mats á áhrifum tekna hafa verið hækkaðar um 6,5% frá síðustu útgáfu leiðbeininganna (júlí 2025) og er sú hækkun í samræmi við þær breytingar sem tóku gildi um síðustu áramót á fjárhæðum húsnæðisbóta. Að baki þeirri hækkun eru breytingar sem gerðar hafa verið á fjárhæðum í almannatryggingakerfinu, m.a. vegna innleiðingar á nýju örorku- og endurhæfingarkerfi og að teknu tilliti til orlofs- og desemberuppbóta.
Þá er viðmiðunarfjárhæð um áhrif eigna færð til samræmis við þá fjárhæð sem reiknað er með í húsnæðisbótakerfinu, þ.e. 13,9 m.kr. frá og með 1. janúar 2026. Byggist breytingin á því að sömu viðmið eigi að gilda í þessu efni um opinberan húsnæðisstuðning, enda standi rök ekki til annars en að viðtakendur sérstaks húsnæðisstuðnings séu almennt í jafnmikilli þörf og aðrir á leigumarkaði að geta safnað sér fyrir útborgun til kaupa á hóflegri fyrstu eign.
Umræddar breytingar hafa verið gerðar að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, sbr. 45. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Breytingar á viðmiðunarupphæðum sérstaks húsnæðisstuðnings hafa nú þegar verið hækkaðar í samræmi við 8. gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðnings í Sveitarfélaginu Hornafjarðar. Málið er lagt fram til kynningar.
|
| Lagt fram til kynningar. |
| Leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings - uppfært mars 2026.pdf |
|
|
|
| 3. 202603005 - Farsældarráð Suðurlands |
Þórgunnur Torfadóttir var tilnefnd sem fulltrúi sveitarfélagsins í Farsældarráði Suðurlands. Nú hefur ráðið fundað einu sinni og mætir Þórgunnur á fundinn og gerir grein fyrir starfsemi þess og hverjar væntingar okkar til starfsemi þess gætu verið næstu árin.
|
Þórgunnur fór yfir markmið og vinnu ráðsins næsta árið. Stefnt er að því að móta áætlun um það hvaða málefni er brýnast að takast á við þegar kemur að börnum og ungmennum. Ráðinu er ætlað að miðla upplýsingum og nýta þá þekkingu sem þar kemur saman. Alls koma 24 aðilar að farsældarráðinu auk þess sem stofnaður hefur verið sérstakur framkvæmdahópur sem saman stendur af öðrum 10 einstaklingum og því alls 34 einstaklingar sem koma að vinnunni í landshlutanum.
Velferðarnefnd þakkar Þórgunni kærlega fyrir yfirferðina og hlakkar til að fylgjast með framgangi ráðsins. |
|
| |
| Gestir |
| Þórgunnur Torfadóttir |
|
|
| 4. 202512009 - Verklagsreglur í farsæld |
Farið yfir verklagsreglur sem unnið hefur verið að í innleiðingarteymi farsældar.
|
Farið yfir 1. útgáfu handbókar um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Handbókinni er ætlað að gefa skýra mynd fyrir starfsmenn, börn og foreldra af því hvernig þjónustan fer fram innan stofnanna sveitarfélagsins.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina. |
| Farsæld - Handbók - Hornafjörður - 1.útgáfa 8.4.2026.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 |