Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 284

Haldinn í ráðhúsi,
04.05.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Skúli Ingólfsson formaður,
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður,
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður,
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir aðalmaður,
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður,
Kristján Reynir Ívarsson Fulltrúi ungmennaráðs,
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jóna Benný Kristjánsdóttir, Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
Skúli Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið.
1. 202209088 - Samningur um hafnaraðstöðu á Austurfjöru
Lögð eru fram drög að samningi á milli Hornafjarðarhafnar og Litlahorns ehf, um hafnaraðstöðuna á Austurfjöru.


Hafnarstjóra er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum um einföldun samningsins.

Samþykkt samhljóða.
2. 202605008 - Rafmagn við bryggjur Hornafjarðarhafna
Hafnarstjórn óskar eftir upplýsingum um hvenær landtengingarrafmagn fyrir skipin við Miklagarðsbryggju verði kláruð.

Hafnarstjóra falið að afla upplýsinga um stöðu málsins og ýta á eftir framkvæmdum.

Samþykkt samhljóða.
3. 202605009 - Tjón á Álaugareyjarbryggju
Óskað er eftir upplýsingum um hvenær áætlað er að laga tjón sem flutningaskip olli á Álaugareyjarbryggju.

Hafnarstjóra er falið að fylgja málinu eftir.

Samþykkt samhljóða.
Kristján Reynir Ívarsson vék af fundi kl. 16:30.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40 

Til baka Prenta