Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1214

Haldinn í ráðhúsi,
24.03.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður,
Gauti Árnason varaformaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Arndís Lára Kolbrúnardóttir, Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi

Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2603007F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 112
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 112 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
 
Gestir
Gunnlaugur Róbertsson - skipulagsfulltrúi
Almenn mál
2. 202603061 - Aðalfundur Félags slökkviliðisstjóra á Höfn 2027
Kostnaðaráætlun vegna aðalfund slökkvistjóra á Íslandi sem fyrirhuguð er á Hornafirði árið 2027 lögð fram.

Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og felur slökkvistjóra að vinna málið áfram.
 
Gestir
Borgþór Freysteinsson - Slökkviliðsstjóri
3. 201904026 - Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Lóðarhafa lóða Sandeyri 8 og Sandeyri 10, sem úthlutaðar voru þann 13.02.2020, var veitur frestur á fundi bæjarráðs þann 09.12.2025 til að fá endurnýjað byggingarleyfi og til að hefja framkvæmdir til 10.02.2026.
Byggingarleyfi hefur verið gefið út á ný þann 19.01.2026 en féll úr gildi sjálfkrafa vegna ógreiddra gjalda. Tilkynning þess efnis var send lóðarhafa þann 02.03.2026.
Sveitarfélagið tilkynnti lóðarhafa um fyrirhugaða afturköllun lóðanna með tölvupósti þann 10.03.2026. Staðfesting á móttöku barst samdægurs en engar frekari upplýsingar eða beiðnir fylgdu póstinum.

Bæjarráð staðfestir afturköllun lóðarinnar og vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Bartek Andersson Kass- Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Gunnlaugur Róbertsson - skipulagsfulltrúi
4. 202002027 - Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)

5. 202506011 - Hofgarður Endurbætur
Lagt fram minnisblað starfsmanna umhverfis- og framkvæmdsviðs vegna endurbóta á Hofgarði. Lagt er til að samhliða breytingum á eldhúsi fara fram endurbætur á fráveitukerfi hússins til að koma því að hreinsivirki á svæðinu.

Bæjarráð samþykkir framlagða beiðni og vísar málinu til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum.
 
Gestir
Bartek Andersson Kass- Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Björn Þór Imsland - Umsjónarmaður fasteigna
6. 202402093 - Hönnun - Endurbætur og viðhald í Ekru
Sveitarfélagið hefur leitað tilboða í verkið Endurbætur í Ekru félagsmiðstöð.
Kostnaðaráætlun verkefnisins var 33.606.100 kr.

Eitt tilboð barst í verkið frá Þingvað ehf, að upphæð 32.870.225 kr, þ.e. 97,81% af kostnaðaráætlun.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði frá Þingvað ehf. og felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til verksamnings.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Björn Þór Imsland - Umsjónarmaður fasteigna
Bartek Andersson Kass- Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
7. 202601013 - Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Samþykkt um meðhöndlun úrgans í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026 lögð fram til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir samþykktina með áornum breytingum sem ræddar voru á fundinum og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Bartek Andersson Kass- Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Xiaoling Yu- Umhverfisfulltrúi
8. 202412030 - Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram fyrstu drög og tillögur að breytingu á samþykkt um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa.

Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálsviðs falið að vinna málið áfram.
9. 202601071 - Staðfærsla fyrir Höfn í tengslum við nýjan miðbæ
Lögð eru fram gögn og staða málsins vegna staðfærslu fyrir höfn í tengslum við nýjan miðbæ.

Lagt fram til kynningar.
10. 202402100 - Fundartími bæjarstjórnar
Lagt er til að bæjarstjórn haldi auka fund þann 28. apríl vegna fyrri umræðu ársreiknings. Fundur bæjarstjórnar í maí lendir á uppstigningardegi og er lagt til að sá fundur verði færður fram til 7. maí.

Bæjarráð samþykkir samhljóða breytta fundartíma bæjarstjórnar.
11. 202602184 - Íbúafundur í Öræfum
Fundargerð frá íbúafundi í Öræfum þann 11. mars síðastliðin lögð fram. Fundargerðin hefur verið yfirfarin og samþykkt af íbúaráði og frummælendum á fundinum.

Lagt fram til kynningar.
Fundargerð íbúafundur Öræfum- yfirfarin af íbúaráði og frummælendum.pdf
12. 202603085 - Skólamáltíðir útboð 2026
Minnisblað um útboðs á skólamáltíðum sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs lagt fram.

Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
13. 202602044 - Fjölmenningarleg inngilding - Ósk um samstarf
Fjárhagsleg áhrif lögð fram vegna óskar um samstarf og styrk frá sveitarfélaginu við fjölmenningarlega inngildingu í FAS.

Bæjarráð samþykkir styrkinn og vísar málinu til viðaukagerðar.
14. 202603102 - Fundarboð frá velferðarnefnd Alþingis um 312.mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Á fundi velferðarnefndar Alþingis sem haldinn verður miðvikudaginn 25. mars verður fjallað um 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)

Óskað er eftir fulltrúa sveitarfélagsins á fund nefndarinnar til þess að fjalla um málið.

Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að mæta á fundinn.
15. 202601163 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambandsins frá 10. mars 2026 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 995.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til baka Prenta