|
|
| 1. 202402127 - Íþróttahús - hönnun |
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 50 lögð fram.
|
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
| 50. fundur 30. apríl 2026 -.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
|
|
| 2. 202605003 - Beiðni umhverfisnefndar Grunnskóla Hornafjarðar um að fjárfest verði í vatnsvél |
Erindi frá umhverfisnefnd Grunnskóla Hornafjarðar þar sem óskað er eftir að fjárfest verði í vatnsvél í grunnskólann.
|
Bæjarráð þakkar umhverfisnefnd Grunnskóla Hornafjarðar kærlega fyrir erindið.
Fjármálastjóra er falið að finna hagkvæmustu leiðina til að útfæra beiðni nefndarinnar í samráði við skólastjóra.
Samþykkt samhljóða.
|
| 20260430_erindi til bæjarráðs.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Unnur Mist Stefánsdóttir, nemandi í 7. bekk |
| Ena Rakovic, nemandi í 8. bekk |
| Björgvin Aríel Tryggvason, nemandi í 8. bekk |
| Bergur Friðrik Bjarnason, nemandi í 9. bekk |
| Steinunn Hödd Harðardóttir, aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar |
| Steinþór Hauksson, nemandi í 7. bekk |
| Þórdís María R. Einarsdóttir, grunnskólakennari |
| Hildur Þórsdóttir, grunnskólakennari |
| Þór Gunnlaugsson, nemandi í 9. bekk |
|
|
| 3. 202602038 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026 |
Gerð er grein fyrir viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og fjárhagslegum áhrifum hans.
Viðaukinn felur í sér breytingar á rekstri og fjárfestingum. Gert er ráð fyrir að mæta honum annars vegar með lækkun á handbæru fé að fjárhæð 43,70 m.kr. og hins vegar með tilfærslu fjárheimilda innan A hluta að fjárhæð 39,83 m.kr. Lækkun fjárheimilda í B hluta er sjálfstæð aðlögun að uppfærðri fjárfestingaráætlun og er ekki hluti af fjármögnun viðaukans.
Meðfylgjandi yfirlit sýnir áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta fjárhagsáætlun ársins.
|
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við viðauka nr. 3 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða. |
| FHÁ 26 Viðauki 3 - minnisblað.pdf |
| Viðauki_3.pdf |
|
|
|
| 4. 202406005 - Framkvæmd Sindrabær breytingar 2024 |
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna óskar eftir að bæjarráð veiti heimild til að framkvæma verðkönnun varðandi innkaup á sviðsljósum og ljósastýringu fyrir Sindrabæ.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að fara í verðkönnun vegna innkaupa á sviðsljósum og ljósastýringu fyrir Sindrabæ. |
|
| |
| Gestir |
| Björn Þór Imsland, umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna |
|
|
| 5. 202604112 - Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál - afhending gagna |
Ásgerður Kristín Gylfadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Sveitarfélaginu hefur borist bréf frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem upplýst er um kæru vegna afhendingar gagna.
|
Bæjarráð áréttar að afstaða þess varðandi gagnabeiðnir er að verða skuli við öllum upplýsingabeiðnum eins fljótt og auðið er ef gögnin eru fyrirliggjandi í samræmi við upplýsingalög.
Fjármálastjóra er falið að vinna málið áfram innan þess tímaramma sem tiltekinn er í kæru í samræmi við upplýsingalög og í samráði við persónuverndarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri var í fjarfundarbúnaði |
|
|
| 6. 202604093 - Erindi til bæjarráðs: Krafa um afhendingu upplýsinga |
Ásgerður Kristín Gylfadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og fjármálastjóri leggja fram upplýsingar vegna svara við fyrirspurnum Sveinbjörns Imsland.
|
Bæjarráð leggur fram í fundargerð svar við fyrirspurnum í erindinu.
Samþykkt samhljóða. |
| 23.04.2026_Erindi_Baejarrad_SVH Signed.pdf |
| Svör við spurningum í erindi til bæjarráðs.pdf |
|
| |
| Gestir |
| Valdís Ósk Sigurðardóttir, fjármálastjóri var í fjarfundarbúnaði |
|
|
| 7. 202412030 - Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram uppfærð drög að samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
|
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
|
|
|
|
| 8. 202604099 - Umsögn um mál frá nefnda- og greiningasviði Alþingis.595.mál - loftslagslög |
Lögð eru fram drög verkefnastjóra umhverfismála að umsögn við 595. mál frá nefnda- og greiningasviði Alþingis - loftslagslög.
|
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að senda inn umsögnina í samræmi við umræður á fundinum.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 9. 202604113 - Samstarfssamningur við Fuglaathugunarstöð Suðausturlands |
Bæjarstjóri leggur fram tillögu að samstarfssamningi við Fulgaathugunarstöð Suðausturlands þar sem gert er ráð fyrir 800.000 kr. framlagi á ári til tveggja ára.
|
| Bæjarráð samþykkir samhljóða samstarfssamning við Fuglaathugunarstöð Suðausturlands og felur byggða- og nýsköpunarfulltrúa að undirrita samninginn. |
|
|
|
| 10. 202605001 - Niðurföll og götulýsing við hús Björgunarfélags Hornafjarðar |
Erindi barst frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir að niðurföllum og götulýsingu verði komið upp við götuna þar sem nýtt húsnæði félagsins stendur.
Auk þess er óskað eftir svörum við fyrirspurn sem send var á formann bæjarráðs og bæjarstjóra í ágúst sl. þar sem óskað er útskýringa á rúmlega 50 milljóna króna styrk sem minnst er á fundargerð Hafnarstjórnar nr. 277 og í hverju sá styrkur felst.
|
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu- og framkvæmdadeildar að vinna að framtíðarútfærslu og hönnun Sæbrautar og eiga samtal við Björgunarfélag Hornafjarðar um mögulegar skammtímaaðgerðir.
Síðari hluta erindisins verður svarað á næsta fundi bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða. |
|
| |
| Gestir |
| Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs |
| Trausti Magnússon, deildarstjóri þjónustu- og framkvæmdadeildar |
|
|
| 11. 202605002 - Veglínur |
Sigrún Sigurgeirsdóttir sendi inn erindi sem hún óskar eftir að bæjarstjórn taki undir á fundi sínum. Erindið varðar veglínur á þjóðvegi 1.
|
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umfjöllunar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða. |
|
|
|
| 12. 202604053 - Samráðsfundir byggða- og nýsköpunarfulltrúa með atvinnulífi í sveitarfélaginu |
Nýverið sá byggða- og nýsköpunarfulltrúi sveitarfélagsins, um fjóra samráðsfundi með helstu atvinnuvegum sveitarfélagsins. Niðurstöður fundanna voru kynntar fyrir atvinnu- og menningarmálanefnd á fundi nefndarinnar nr. 87, 22. apríl sl.
|
Bæjarráð þakkar öllum þeim sem sóttu fundina og lögðu fram mikilvægar upplýsingar til áframhaldandi vinnu í atvinnumálum í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða. |
| Samráðsfundir skýrsla 2026.pdf |
|
|
|
| 13. 202601163 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 |
Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambandsins frá 17. apríl 2026 lögð fram.
|
| Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
| stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 997.pdf |
|
|
|