| Ungmennaráð Hornafjarðar - 112 |
Haldinn í ráðhúsi, 04.05.2026 og hófst hann kl. 16:30 |
|
Fundinn sátu: Selma Ýr Ívarsdóttir , Adam Bjarni Jónsson , Sindri Sigurjón Einarsson , Sigurður Gunnlaugsson , Björg Kristjánsdóttir , Birta Ósk Sigbjörnsdóttir , Kristján Reynir Ívarsson , Sunna Dís Birgisdóttir , Theódór Árni Stefánsson , Ágústa Margrét Arnardóttir . |
|
Fundargerð ritaði: Ágústa Margrét Arnardóttir, verkefnistjóri á fræðslu- og frístundasviði |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
|
| 1. 202604116 - Rannsókn tengd barnamenningarhátíð |
Unnið er að rannsókn tengdri Barnamenningarhátíð á Suðurlandi þar sem markmiðið er að skoða hvernig megi auka þátttöku ungmenna á aldrinum 15-18 ára. Rannsóknin er hluti af misserisverkefni í Háskólanum á Bifröst og unnin af fimm manna hópi, þar sem tveir aðilar starfa hjá sitthvoru sveitarfélaginu og hafa komið að undirbúningi fyrstu barnamenningarhátíðarinnar sem fram fer þessa vikuna.
Óskað er eftir samstarfi við ungmennaráð á Suðurlandi með því að leggja fyrir stutta spurningakönnun sem svarað yrði formlega á fundi ráðanna. Markmiðið er að fá fram sjónarmið ungmenna og nýta niðurstöðurnar til að efla þátttöku þeirra í framtíðinni.
|
| Ungmennaráð Hornafjarðar svaraði könnun sem lögð var fyrir þau, og ræddi stuttlega um innihald könnunar og Barnamenningarhátíðina. |
|
|
|
| 2. 202602162 - Sumarfrístund 2026 |
Farið verður yfir uppsetningu sumarfrístundarinnar og hún rædd, endurskoðuð og þróuð áfram í samráði við ungmennaráð.
|
Verkefnastjóri kynnti fyrirkomulag sumarfrístundar: Gæsla fyrir 1.-4. bekk verður með sama móti og undanfarin ár kl. 08-09 og 13-16, ungmennaráð telur þetta mjög gott. Námskeið kl 09-12 eru með breyttu sniði. Undanfarin ár hefur umf. Sindri séð um leikjanámskeið á þessum tíma en nú verða námskeið á vegum ýmissa félagasamtaka og einstaklinga. Ungmennaráð telur þetta mjög gott, skemmtilegt og fjölbreytt. Opið hús fyrir 5.-6. bekk milli kl 10-15 er með breyttu sniði að því leiti að nú færist starfið út úr Þrykkjunni og á opið svæði sem sveitafélagið hefur til umráða fyrir aftan Krónu bygginguna. Ungmennaráð telur þetta flott og gott. Kvöld opnanir Þrykkjunnar fyrir 8.-10. bekk verða áfram á mán. mið og föstudagskvöldum í sumar. Ungmennaráð telur þetta mikilvægt og væri mjög gott að hafa einhverja dagskrá td. mót, pool, slímgerð og allskonar, leggja áherslu á útileiki td. tví tví, kóng, löggu og bófa, köttur og mús. |
|
|
|
| 3. 202603046 - Vinnuskóli Hornafjarðar 2026 |
Vinnuskóli Hornafjarðar ræddur á fundi með ungmennaráði.
|
| Verkefnastjóri fór yfir ýmsar praktískar upplýsingar varðandi vinnuskólann td. vinnutíma 7. bekkjar, umsóknarferli, skiptingu milli vinnuskóla og gæslu, flokkstjóra og fleira. Ungmennaráði leyst vel á og hvetja unglinga til að sækja um í vinnukólanum. |
|
|
|
| 4. 202509069 - Skaftfellingur |
Nú styttist í að Ungmennaráð þarf að skila af sér grein í Skaftfelling og fulltrúi fer yfir stöðuna á því.
|
| Selma Ýr Ívarsdóttir tók að sér að skrifa grein í Skaftfelling, það gengur vel og er greinin að verða tilbúin. Ungmennaráð mun lesa vel yfir áður en Selma Ýr sendir greinina inn. |
|
|
|
| 5. 202601015 - Skuggakosningar 2026 ( Sveitarstjórnarkosningar) |
Farið yfir síðustu handtökin og hvað þarf að gera fyrir skuggakosningarnar.
|
Undirbúningur Skuggakosninga hefur gengið mjög vel og farið var vel yfir næstu skref. Verkefnum var skipt á milli ungmennaráðs. Fimmtudaginn 7. maí verður hádegishittingur með frambjóðendum. Skuggakosningar fara fram 12. og 13. maí og kosningum verður fagnað i Sindrabæ um kvöldið.
|
|
|
|
| 6. 202505023 - Graffíll |
Graffíll er listahátíð ungmenna á Höfn í Hornafirði, haldin fyrir ungt fólk og skipulögð af ungu fólki. Graffíll kynnir stöðuna fyrir Ungmennaráð Hornafjarðar.
|
| Ungmennaráð þakkar Sigurði Pálma Hafþórssyni fyrir að koma og kynna Grafíl. Grafíll verður 18. júlí og er unglistahátíð. Hátíðin verður líklega með svipuðu formi og síðasta ár. Áhersla lögð á það sem fólk getur borið ábyrgð á. Sigurður Pálmi heldur utan um skráningar og hvetur unglinga og ungt fólk til að fylgjast með heimaíðunni og samfélagsmiðlum, og skrá sig til að vera með viðburði. Hátíðin er fyrir ungt fólk, haldin af ungu fólki. Heimasíðan fer í loftið um miðjan maí, við hvetjum alla til að kynna sér hátíðina vel www.grafill.com og grafill_listahatid á instagram |
|
| |
| Gestir |
| Sigurður Pálmi Haffþórsson |
|
|
| 7. 202510010 - Fulltrúar í fastenefndum fara yfir málin |
Fulltrúar ungmennaráðs í fastanefndum sveitarfélagsins kynna umræður og mál sem þeim finnst standa upp úr af fundum nefndanna. Það sem er áhugaverðast eða hefur verið mest umdeilt eða eftirminnilegt.
|
Atvinnu- og menningamálanefnd: Icelandair og flugsamgöngur, styrkveitingar og breytingar á menningarverðlaunum. Fræðslu- og frístundasvið: Skóladagatal, breytingar gerðar um vetrarfrí, tilraunaopnun í sundlauginni á þriðjudögum, ársskýrslur ýmissa félaga. Farið yfir skólapúlsinn. Velferðarnefnd: ekkert sem stóð sérstaklega upp úr. Umhverfis- og skipulagsnefnd: Fundir hafa verið á skólatíma nemenda í FAS, þannig að fulltrúi frá ungmennaráði hefur ekki séð sér fært að mæta. Hafnarnefnd: Fundur Hafnarnefndar er á sama tíma og fundur ungmennaráðs.
|
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 |
|