Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 113

Haldinn í ráðhúsi,
07.04.2026 og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu: Þröstur Jóhannsson aðalmaður,
Helga Árnadóttir aðalmaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir formaður,
Elías Tjörvi Halldórsson varaformaður,
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Róbertsson, Skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202602067 - Aðalskipulagsbreyting vegna uppbyggingu miðbæjar á Höfn
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna hóteláforma við smábátahöfnina. Samkvæmt tillögu stækkar miðsvæði niður á hafnarsvæði á milli Pakkhúss og Bátstanga til að rúma þar ferðaþjónustu í samspili við hafnarstarfsemi.

Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að vinna breytinguna inn í endurskoðun aðalskipulags. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00 

Til baka Prenta