Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 112

Haldinn í Miðgarði,
18.03.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir formaður,
Elías Tjörvi Halldórsson varaformaður,
Níels Brimar Jónsson 1. varamaður,
Bartek Andresson Kass , Xiaoling Yo .
Fundargerð ritaði: Bartek Andresson Kass, 


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202603052 - Lokun móttökustöðvar á ákveðnum laugardögum í tengslum við helgidaga
Hringrás hefur óskað eftir heimild til að hafa móttökustöðina lokaða á ákveðnum laugardögum í tengslum við helstu hátíðir ársins.

Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við lokanir á laugardögum í tengslum við jól og páska en fer fram á að opið sé á laugardegi um verslunarmannahelgi. Nefndin leggur áherslu á að lokanir verða auglýstar tímanlega.
2. 202603057 - Yfirlit beitar og slægju hólf innan Hafnar
Tekið er fyrir yfirlit yfir beitar- og slægju svæði innan Hafnar. Á 1212. fundi bæjarráðs var óskað eftir yfirsýn yfir þau svæði sem eru í útleigu sem beitar- og slægju svæði.

Lagt fram til kynningar.
3. 202512090 - Breyting á deiliskipulagi miðsvæðis
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðsvæði, skóla- og íþróttasvæði. Breytingin felur í sér að lóðin að Hafnarbraut 40b er tekin út. Breytingin hefur verið í kynningu en engar athugasemdir voru gerðar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að starfsmanni verði falið að senda breytingu til Skipulagsstofnunar og auglýsa gildistöku. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4. 202510031 - Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 13-Atvinnuhúsnæði
Tekin er fyrir umsókn um byggingu við Hafnarbraut 13. Áformin hafa verið grenndarkynnt, engar athugasemdir bárust.

Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
5. 202603003 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi Hof 1
Tekin er fyrir umsókn Arctic Circle Hotels ehf. vegna áforma um byggingu 14 íbúða starfsmannahúss að Hofi 1 í Öræfum.

Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að kanna hvort fyrirhuguð byggingaráform falli undir skilmála skipulags fyrir svæðið og afla frekari upplýsinga um áformin frá umsækjanda.
6. 202510113 - Byggingarleyfisumsókn - Mjóatorfa, íbúðarhús
Tekin er fyrir umsókn Hafdísar S. Roysdóttur um leyfi til byggingarframkvæmda að Mjóutorfu í Öræfum. Fyrirhugað er reisa íbúðarhús. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er svæðið á landbúnaðarsvæði. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust.

Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
7. 202602083 - Umsókn um byggingarleyfi - Hafnarbraut 47, viðbygging
Tekin er fyrir umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu við Hafnarbraut 47 (Brautarholt). Viðbyggingin saman stendur af kjallara og tveimur hæðum ásamt tvöföldum staðsteyptum bílskúr. Ekki er í gildi deiliskipulag sem nær yfir lóðina.

Starfsmanni falið að grenndarkynna áform íbúum lóða að Hafnarbraut 45, 45A, 45B, 47A og 49 í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
8. 202603011 - Áskorun frá Siglingasambandi Íslands
Erindi Siglingasambands Íslands (SÍL) lagt fram. Sambandið skorar á sveitafélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi
almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og
starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.


Lagt fram til kynningar.
9. 202603053 - Beiðni frá Kiwanisklúbbnum Keili
Erindi frá Kiwanisklúbbnum Keili um að koma fyrir bekk þar sem útsýni er yfir Hornarfjarðarós til minningar um þá sem fórust með skólaskipinu Mími RE 3 árið 1991.

Umhverfis- og skipulagsnefnd er jákvæð fyrir erindinu og felur starfsmanni að útfæra verkefnið með umsækjanda.
10. 202603048 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - Lón, Plæging á háspennustreng
Framkvæmdaleyfisumsókn Rarik tekin fyrir. Samkvæmt umfókn á að plægja 19 kV háspennustreng inn í Stafafellsfjöll og frá Brekku að Aðalbóli. Einnig frá Reyðará að Holti. Stofn strengur verður plægður frá Brekku að Aðalbóli og hjálparstrengir út frá honum. Uppsetning spennistöðva, háspennutengiskápa og rofahúsa á leiðinni. Heildarlengd plægingaleiða er um 20km og gert er ráð fyrir að setja upp 13 jarðspennistöðvar, 2 háspennutengiskápa og 2 rofahús.


Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við útgáfu framkvæmdarleyfis en skorar á umsækjanda að taka mið af umsögnum Náttúruverndarstofnunar og Minjastofnunar. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
11. 202603047 - Landeignaskrá - Sandfell , umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003575
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Sandfell, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga. Umsækjanda er bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi. Málinu vísað til bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15 

Til baka Prenta