Auglýst er eftir sundlaugarverði við Íþróttamiðstöð Hornafjarðar

Um er að ræða 100% starf til framtíðar.

Starfstími er í samræmi við vaktatöflu. Einungis er um að ræða stöðu fyrir kvenmann.

Helstu verkefni: Afgreiðsla, þrif og almennt eftirlit með gestum og húsinu.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga við FOSS, BSRB og Afl Starfsgreinafélag.

Frekari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Hornafjarðar, sími 899-1968.

Netfang: www.gunnaringi@hornafjordur.is

Umsóknarfrestur er til 10. apríl. 2026 og skal stíla umsókn á: Gunnar Ingi Valgeirson, Íþróttamiðstöð Hornafjarðar Hafnarbraut 27. 780 Höfn.

Gunnar Ingi Valgeirsson
Forstöðumaður Íþróttamannvirkja Hornafjarðar.