Laust starf við Svavarssafn

Menningarmiðstöð Hornafjarðar óskar eftir sérfræðingi til starfa.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar rekur þverfaglega og fjölbreytta stofnun sem sér meðal annars um fjögur söfn sveitarfélagsins, lista-, byggða-, bóka- og héraðsskjalasafn. Níu starfsmenn starfa saman hjá stofnuninni þó hver með sitt sérsvið. Við auglýsum nú stöðu sérfræðings á listasafn Svavars Guðnasonar lausa til umsóknar.

Um fullt starf er að ræða og gerð er krafa um búsetu á svæðinu. Viðkomandi mun leiða starfsemi listasafnsins í samráði við forstöðumann. Mikill metnaður er fyrir sýningarhaldi Svavarssafns sem og miðlun og varðveislu safneignarinnar. Áhersla er lögð á að safnið og Menningarmiðstöðin öll auðgi samfélagið og sé í virku samtali við íbúa og aðra hagaðila.

Helstu verkefni:

  • Leiða faglegt starf safnsins og daglega umsjón þess
  • Umsjón með verkum og varðveislu þeirra
  • Skipulagning og uppsetning sýninga
  • Samskipti við listamenn og hagaðila
  • Skrif og eftirfylgni styrkumsókna


Menntunar og hæfniskröfur

  • - Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • - Reynsla af sambærilegum störfum
  • - Þekking og reynsla af styrkumsóknum
  • - Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum
  • - Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • - Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • - Þekking á menningarlífi í sveitarfélaginu kostur


Laun eru greidd samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 18. maí 2026
Umsókn með ferilskrá, meðmælendum og kynningarbréfi sendist rafrænt á netfangið kristinvala@hornafjordur.is. Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, á netfanginu kristinvala@hornafjordur.is og í síma 470-8051.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarhlekkur:
Sérfræðinur á listasafni Svavarssafns á Höfn - Umsóknarvefur