Leikskólinn Sjónarhóll auglýsir eftir matráð
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Uppvask og þrif í eldhúsi og kaffistofu starfsmanna
- Aðstoða við matreiðslu eftir þörfum
- Ganga frá þvotti
- Sjáum að tæma rusl úr eldhúsi
- Önnur tilfallandi störf tengd eldhúsi
Hæfniskröfur:
- Stundvísi, frumkvæði og drifkraft í starfið.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla við að vinna í eldhúsi er kostur
- Góð íslenskukunnátta -
Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 11. júlí næstkomandi.
Áhugasamir af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Umsóknum skal skila á netfangið mariannaj@hornafjordur.is. Með umsókn skal fylgja afrit af menntunargögnum ásamt ferilskrá og meðmælendum. Frekari upplýsingar veita Maríanna í síma 4708491 og Elínborg í síma 4708492.
Leikskólinn Sjónarhóll er glæsilegur 8 deilda leikskóli með metnaðarfullu starfsfólki sem er til í að fá áhugasaman liðsauka. Leikskólinn er heilsuleikskóli sem leggur áherslu á útiveru og að kenna börnum færni í gegnum leik.
Athygli er vakin á því að við ráðningu leikskólastarfsmanns er óskað eftir sakavottorði og að umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út.