Deildarstjóri skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar
Við leitum að öflugum, framsýnum og skipulögðum leiðtoga. Auglýst er eftir deildarstjóra skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar, sem jafnframt gegnir hlutverki skipulagsfulltrúa.
Um er að ræða lykilhlutverk í uppbyggingu og mótun sjálfbæra og blómlega framtíð samfélagsins á einstökum stað. Ertu tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og leiða mikilvæga þróun?
- Umsjón með öflugu teymi sem samanstendur af umhverfisfulltrúa, byggingarfulltrúa og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála.
- Yfirumsjón með öllum skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal gerð og endurskoðun aðal- og deiliskipulags í samræmi við sýn sveitarfélagsins.
- Undirbúningur mála fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd, útgáfa framkvæmdaleyfa og túlkun skipulagsskilmála.
- Umsjón með landupplýsingakerfum, kortagrunnum og úthlutun lóða, ásamt utanumhaldi landeigna.
- Gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar og eftirlit með skipulagsmálum aðliggjandi sveitarfélaga.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Umsækjandi þarf að uppfylla hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Reynsla af skipulagsmálum er nauðsynleg. Reynsla af opinberri stjórnsýslu og mannaforráðum er stór kostur.
- Jákvæðni, lipurð í samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt.
- Drifkraftur, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í íslensku.
- Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni sem tengist starfssviðinu.
Við hvetjum einnig einstaklinga sem uppfylla ekki hæfisskilyrði skipulagslaga, en uppfylla önnur skilyrði, til að sækja um. Í þeim tilfellum kemur til greina tímabundin ráðning á grundvelli undanþágu ráðherra skv. 6.mgr. 7.gr. skipulagslaga.
Sveitarfélagið Hornafjörður er kraftmikið samfélag þar sem náttúra og atvinnulíf spila saman á einstakan hátt. Við bjóðum upp á krefjandi verkefni og tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif.
Umsóknum skal skilað inn til Barteks Andressonar Kass sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs á tölvupóstfangið bartek@hornafjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Bartek Andresson Kass sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs - bartek@hornafjordur.is.
Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum.

