Breyting á deiliskipulagi Hafnarbraut 4 og 6 á Höfn

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hafnarvík -Heppa samkvæmt 43. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Byggingarreitir lóða við Hafnarbraut 4 og 6 stækka og verða samtengdir. Heimild verður fyrir þriggja hæða byggingu og kjallara á lóð nr. 6 og allt að tveggja hæða viðbyggingu og kjallara á hluta lóðar nr. 4. Gert er ráð fyrir um 20 bílastæðum í kjallara.

Allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi og því er fallið frá kröfu um lýsingu.

Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum að Hafnarbraut 27 frá og með 17. mars til 28. apríl 2022 og hér uppdráttur .

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 eða á skipulag@hornafjordur.is fyrir 17. maí 2022.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri
Sv
eitarfélagsins Hornafjarðar