Hafnarsvæðið við Krossey - breyting á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 11. janúar 2023 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis við Krossey í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin tekur til reits á Krosseyjarvegi 2 austan við fiskvinnsluhús og felur m.a. í sér að byggingarreitur stækkar og hámarkshæð húss hækkar úr 10 m í 17 m.

Tillagan verður til sýnis frá 27. janúar til 10. mars 2023 í anddyri Ráðhúss Hafnarbraut 28, 780 Höfn og er hún einnig aðgengileg hér að neðan:

Tillaga að breytingu deiliskipulags

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eða vilja gera athugasemdir er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögunina á auglýsingatíma.

Eingöngu er tekið við athugasemdum á rafrænan hátt gegnum tengilinn hér fyrir neðan. Tengillin vísar á íbúagátt og þarf að skrá sig inn með íslykli.

Senda inn athugasemd.

Umhverfis- og skipulagsstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar