Stuðnings- og virkniþjónusta Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir sumarstörf við Búsetudeild

Stuðnings-og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingum í sumarafleysingar við Búsetudeild. Starfið felur í sér aðstoð á heimilum einstaklinga við athafnir daglegs lífs með það að markmiði að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar ásamt því að veita félagslegan stuðning. 

Stuðnings- og virkniþjónusta heyrir undir velferðarsvið sveitarfélagsins og er staðsett í Miðgarði, Víkurbraut 24. Vinnustaðurinn er lifandi og skemmtilegur og þar starfar fjölbreyttur hópur fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og mikil áhersla er lögð á fagmennsku og ánægju í starfi.

Hæfniskröfur:

· Nám sem nýtist í starfi er kostur

· Reynsla af starfi í málaflokki fatlaðs fólks og/eða aldraðra kostur

· Haldbær þekking á þjónandi leiðsögn kostur

· Framúrskarandi samskiptahæfni

· Stundvísi, frumkvæði og samviskusemi

· Góð tök á íslensku í ræðu og riti

· Hreint sakavottorð

· Bílpróf

Um vaktavinnu er að ræða en viðkomandi starfsmaður og þarf starfsmaður að ganga morgun-, kvöld og bakvaktir.

Umsóknarfrestur er til og með 2. mars n.k. og skal umsókn fylgja ferilskrá.

Umsóknir skulu sendar á netfangið bessy@hornafjordur.is. Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga við ASÍ/BSRB Ráðið er í starfið óháð kyni og eru öll kyn hvött til að sækja um.