Sumarafleysingar hjá Hornafjarðarhöfn
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir starfsmanni á höfnina til afleysinga yfir sumarið.
Leitað er eftir einstaklingi sem á gott með að vinna með öðrum, hefur frumkvæði og er stundvís, metnaðarfullur og samviskusamur. Viðkomandi þarf að búa yfir sjálfstæðum vinnubrögðum og ríkri þjónustulund.
Starfið hentar öllum kynjum en æskilegur aldur er 20 ára eða eldri. Gerð er krafa um bílpróf og vigtarréttindi er kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vigtun sjávarafla og skráning í aflaskráningarkerfi Fiskistofu
- Vigtun og skráning á sorpi
- Almenn störf, viðhald, hreinsun og snyrting hafnarmannvirkja og hafnarsvæðis
Laun eru greidd samkvæmt samningum Launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga við FOSS BSRB eða Afl Starfsgreinafélags.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl næstkomandi.
Skriflegar umsóknir, ásamt ferilskrá, skulu berast á netfangið ahaldahus@hornafjordur.is og nánari upplýsingar um starfið gefur Þröstur Jóhannsson, bæjarverkstjóri, í síma 895 1473.
