Sumarstarf á umhverfis- og framkvæmdasviði

29.4.2026

Viltu taka þátt í að móta stafræna framtíð Hornafjarðar?

Umhverfis- og framkvæmdasvið leitar að drífandi sumarstarfsmanni til að leiða verkefni við stafræna endurskipulagningu á gögnum sviðsins. Verkefnið er tilvalið fyrir nema eða einstaklinga sem vilja krefjandi starfsreynslu sem lítur vel út á ferilskránni.

Af hverju er þetta starf mikilvægt?
Sveitarfélagið stendur frammi fyrir mikilli stafrænni vegferð. Við erum að minnka geymslurými í ráðhúsinu og viljum tryggja að allar upplýsingar um lóðir og mannvirki séu aðgengilegar rafrænt. Þú verður lykilmanneskja í að bjarga mikilvægri sögu og tæknigögnum úr möppum yfir í nútímalegt tölvukerfi.

Verkefnin þín:
· Þú ferð í gegnum lóðamöppur sveitarfélagsins og metur hvaða gögn vantar í stafræna gagnasafnið.

· Þú skannar inn mikilvægar teikningar og samþykktir sem hafa mikið varðveislugildi.

· Þú vistar gögnin í málakerfi sveitarfélagsins þannig að þau nýtist starfsmönnum og íbúum til framtíðar.

Hver ert þú?
· Þú ert skipulögð manneskja og ferð vel með gögn.

· Þú ert fljót(ur) að læra á ný tölvukerfi og tæki.

· Þú býrð yfir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt að stórum verkefnum.

· Þú hefur áhuga á að kynnast opinberri stjórnsýslu, arkitektúr eða verkfræðitengdum gögnum.

Um starfið:
· Starfstími er að 3 mánuðir yfir sumarið.

· Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem samband íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

· Vinnustaður er í skrifstofum sveitarfélagsins í fallegu umhverfi á Höfn.

Þetta er frábært tækifæri til að öðlast reynslu sem nýtist í námi og starfi, kynnast fagfólki á umhverfis- og framkvæmdasviði og hafa raunveruleg áhrif á vinnulag sveitarfélagsins.

Bartek Andresson Kass, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, svarar öllum fyrirspurnum og tekur á móti umsóknum sendum á á tölvupóstfangið bartek@hornafjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí nk.
Vertu með í að byggja upp stafrænan Hornafjörð!