Vinnuskólinn 2026

21.4.2026

Vinnuskólinn, fyrstu skref ungs fólks á vinnumarkaði

Í vinnuskólanum er lögð áhersla á að nemendur öðlist góða reynslu og fræðist um vinnumarkaðinn.

Vinnuskólinn er ætlaður ungu fólki fæddum 2010 – 2013.. Boðið er upp á vinnu fyrir 2010 – 2012 árgangana frá kl. 9-12 og eða kl. 13-16, en 2013 árganginn frá kl. 9 – 12. 

Einnig geta ungmenni á aldrinum 16-18 ára sótt um vinnu hjá sveitarfélaginu í sumar í tengslum við vinnuskólann eða sumarfrístund.​

​Vinnuskólinn stendur í u.þ.b. 8 vikur. Hefst 8. júní og lýkur 31. júlí. ​
​Til að sækja um vinnu er best að fara inn á íbúagátt, fara inn á umsóknir og sækja um vinnu undir vinnuskólinn. Mikilvægt er að skrá allar upplýsingar.​

​Einnig er hægt að senda tölvupóst á agustam@hornafjordur.is þar sem fram koma upplýsingar um nafn ungmennis, kennitala, heimilisfang, nafn foreldra, símanúmer, tölvupóstfang, bankaupplýsingar barns og hvenær viðkomandi vill byrja að vinna (tímabil) og og hvaða vinnutíma er óskað eftir. ​

​​Við hvetjum alla sem hafa aldur og áhuga að sækja um í vinnuskólanum. ​

​Umsóknarfrestur er til 1. júní n.k. ​

​Allar frekari upplýsingum gefur Ágústa Margrét Arnardóttir, s. 470-8028 agustam@hornafjordur.is