Jafnrétti

3.3.2022

Velferðarnefnd fer með störf jafnréttisnefndar og er sviðsstjóri Velferðarsviðs jafnréttisfulltrúi Sveitarfélagsins Hornafjarðar og starfar samkvæmt jafnréttisáætlun þess.

Markið jafnréttisáætlunar er að tryggja íbúum og starfsfólki sveitarfélagsins lögbundin réttindi, koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna og jafna þannig stöðu þeirra á öllum sviðum samfélagsins. Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kyni.

Frekari upplýsingar um jafnréttismál má nálgast hjá starfsmönnum velferðarsviðs í síma 470-8011 eða á netfangið velferd@hornafjordur.is