Íþróttahúsið Höfn

Gunnar Ingi Valgeirsson forstöðumaður

 

Íþróttahúsið Höfn er með íþróttasal sem er um 600 m2. Íþróttahúsið er sambyggt grunnskóla Hornafjarðar (Heppuskóla). Íþróttakennsla Grunnskóla Hornafjarðar fer þar fram. Einnig hefur Umf. Sindri afnot af húsinu utan skólatíma fyrir sitt íþróttastarf. Hægt er að fá Íþróttahúsið  leigt eftir gjaldskrá sveitarfélagssins.

Auk hefðbundinnar íþróttastarfsemi má nefna að íþróttahúsið gegnir mikilvægu hlutverki sem fjölnotahús, þar eru haldnir tónleikar og aðrar stórar samkomur.

Hægt er að fá Íþróttahúsið  leigt en leigan fer eftir gjaldskrá vegna útleigu á húsnæðis og munum í eigu sveitarfélagssins.