Sumarfrístundir
Sumar 2025
Uppfærslur koma inn jafnóðum og þær berast
Zajęcia wakacyjne
Summer Leisure Activities
Á þessari síðu reynum við að halda utan um sumarstarf sem er í boði fyrir börnin í sveitarfélaginu. Við minnum á að hægt er að nýta frístundastyrkinn í mikið af þessu starfi.
Starfsfólk vinnur nú að skipulagningu sumarfrístundar sem verður með breyttu sniði sumarið 2026 miðað við undanfarin ár, þar sem ekki verður boðið upp á leikjanámskeið.
Starfsfólk á fræðslu- og frístundasviði er í samtali við deildir og aðra aðila í frístundastarfi með það að markmiði að byggja upp fjölbreytta sumarfrístund sem byggir á námskeiðum frá ólíkum aðilum.
Ef þú hefur áhuga á að bjóða upp á námskeið eða frístundastarf fyrir börn í sumar, vinsamlegast hafðu samband við fræðslu- og frístundasvið til að fá nánari upplýsingar á netfangið: emilmoravek@hornafjordur.is
Til að skrá börnin þarf að fara inn á sportabler.com/shop og skrá sig þar inn. Ef það er íþróttanámskeið hjá Sindra þá er það www.sportabler.com/shop/umfsindri en ef það er gæsla, Tónskóli eða annað á vegum Sveitarfélagsins þá er það www.sportabler.com/shop/hornafjordur
Hægt er að smella á tengla í auglýsingunni fyrir nánari upplýsingar.
Ef þú ert með starfsemi í sumar sem ætti heima hér, hafðu samband við Emil Moravék verkefnastjóra á fræðslu- og frístundasviði. emilmoravek@hornafjordur.is
Athugið að uppfærslur koma inn jafnóðum og þær berast.

