Notendahandbók

Um notendahandbókina

Þessi síða er til að aðstoða vefstjórann sem nokkurskonar glósubók. Það má bæta við upplýsingum að vild. 
Síðan kemur hvorki upp í leit, né veftrénu.

Myndir

Í skjalakerfinu er mappa merkt "Notendahandbók" sem er ætluð fyrir myndir sem fara á þessa síðu.

 

Efnis-/ textastílar í greinum

Lítill texti

Smátt letur: (þessir stílar gilda allir fyrir texta af tegundinni "P - málsgrein".)

Texti með mynd.

Mynd + texti í grein

Það er hægt að setja inn myndir með texta undir með því að setja myndina fremst í sitt eigið paragraph, skrifa texta aftan við myndina, og velja P-stílinn "Mynd og texti - hægri" (eða vinstri). 

Soft hyphen

Þegar unnið er með löng orð má setja "soft-hyphen" inn í þau til að segja vafranum hvar þau eiga að skipta sér ef þörf er á. 

Farið er í skráningu greinar og sett inn "­" í viðkomandi orð þar sem að skiptingin á að eiga sér stað (ath. ekki er hægt að gera þetta í gegnum vefritilinn). Short-cut fyrir þetta er: Ctrl. + Shift + Enter

Dæmi: Vegavinnu­verkamenn

Vegavinnu- 
verkamenn

 

Gæsalappir

Til að fá inndreginn texta með gæsalöpp og línu vinstra megin (eins og á myndinni fyrir neðan) þá er textinn valinn. Þar næst er smellt á gæsalappa merkið uppi í aðgerðastikunni.

 

Fela icon á linkum sem fara út af vefnum

Linkar sem fara með okkur út af vefnum fá icon fyrir aftan. Til að fela þetta icon er hægt að setja klasann noicon annað hvort á linkinn eða einhverstaðar á undan.

Dæmi:  Velja linkinn og fara í A stíll og velja Fela external icon. Sjá mynd fyrir neðan.


Forsíða - 3 flýtilinkabox 

Til að skrá/breyta/eyða link í boxunum þremur á forsíðu er smellt á bláa kassann og valið "Breyta efni". 
Athugið að þegar maður er innskráður, þá raðast linkarnir í lóðrétta röð.

QuickboxTil að skrá nýjan link er smellt fyrir aftan einhvern link, svo er smellt á Enter á lyklaborði og texti með link gerður.


Horna-employees

Starfsmannalisti

Til að fá email icon í starfsmannalistann þarf að gera eftirfarandi:

  1. Skrifa netfangið í dálkinn
  2. Velja netfangið og setja link
    • Tegund = Netfang
    • Vefslóð = rétt netfang
      Horna-employees2
  3. Ef það kemur ekki umslag icon, þá þarf að stilla dálkinn
    • smella músinni inní dálkinn og velja: "TD stíll: Netfang"
      Horna-employees3


Stofnanir - Summary

Hægt er að setja inn tilbúið HTML fyrir summary á síðu fyrir stofnanir (skóli, sundlaug o.fl.)

Farið er með bendilinn í summary dálkinn í greininni. Smellt er á HTML takkann og valið "Stofnanir - Summary". Þá kemur tilbúið HTML með síma, netfangi og auka link.
ATH: það þarf að breyta texta og vefslóðum.


Stofnanir - Opnunartími (box hægra megin)

 Hægt er að setja inn tilbúið HTML fyrir opnunartímann sem birtist hægra megin í meginmálinu á síðu fyrir t.d. sundlaug.

Farið er með bendilinn fremst í meginmál dálkinn í greininni. Smellt er á HTML takkann og valið "Stofnun - Opnunartími hægra megin í grein". Þá kemur tilbúið HTML með sumar og vetraropnun með upplýsingar um tímann.
ATH: það þarf að breyta texta og vefslóðum.
Box með opnunartíma færist til hægri eftir að maður útskráir sig.


Google Maps

 Til að setja kort á síðu, t.d. skóla, sundlaug o.fl.

Sækja embed link

Til að sækja embed link á kortið er farið á síðu Google Maps og skrifað heimilisfangið í leitina.
Næst er farið í menu efst í vinstra horni og smellt á "Share or embed map"

Svo er farið í flipann "Embed map" og https slóðin öll afrituð.

Setja kortalink í grein

Farið í greinina þar sem kortið á að birtast (neðst í meginmáli). Skrifa textann "Google Maps" og setja sem link með slóðina sem var fundin í Google Maps í skrefinu á undan.

Síðan er settur "A stíll: Google Maps".


Myndasafn / Tengja margar myndir við grein/frétt 

Hægt er að tengja margar myndir við grein/frétt þegar verið er að upload-a þeim í fyrsta skiptið. Athugið að það er ekki hægt að tengja margar myndir sem eru þegar í skjalasafninu, þá er þarf að velja eina í einu.

Þegar frétt er skrifuð og rithamur virkur, þá eru nokkrar myndir dregnar inn á síðuna og yfir gula svæðið neðst.
Með þessu vistast myndirnar í EPLICA skjalakerfið og tengjast við grein/frétt.

DragamyndirTil að setja stíla fyrir myndasafn þarf að velja einhverja mynd og svo í valmyndastikunni "P stíll: Myndasafn".

Myndasafn

Myndasida


Myndirnar raðast í röð í ákveðinni stærð sem hægt er að opna stærra og fletta á milli.




Viðburður

Til að stofna viðburð er byrjað á því að nýskrá grein og skrifa textann sem á að vera.

Til að skrá dagsetningu er valið "Breyta skráningu" og flipinn "Viðburðaskráning" valinn. 
Staðsetning: Fellilisti með staðsetningum. Ef staðsetningin er ekki í listanum er hakað í "Ný staðsetning" og ný staðsetning skráð.
Tímaseting: Velja dagsetningar og tíma. Ef viðburðurinn er allan daginn er hakað í "Allan daginn" og þá hverfa valmöguleikarnir fyrir tímann.
Til að vista er smellt á takkann "Skrá viðburð. 
Að lokum er svo smellt á takkann "Vista breytingar".

Vidburdur

Form / Útkeyrsla forma

Það eru nokkur form á síðunni, s.s. "Hafa samband" og "Senda inn viðburð".

Form

Breyta upplýsingum í formi

Til að breyta formi (t.d. netfangi eða skilaboðum), er farið í MENU efst til vinstri og valið "Eplica stjórnkerfið" - "Vefnotkun" - Form

Form er valið og þá opnast popup gluggi með 3 flipum.
Fyrsti flipinn er með skilaboðum sem koma á skjáinn.
Annar flipinn er netfangið sem fær póstinn.

Útkeyrsla forma

Til að keyra út skráningar, er farið í MENU efst til vinstri og valið "Eplica stjórnkerfið" - "Vefnotkun" - Útkeyrsla forma.

Valið er hvaða form á að keyra út (hafa samband eða senda viðburð) og annað hvort er valið að keyra út í excel eða skoða innsendingar.

Form: Þín skoðun

Thinskodun

Til að breyta spurningunni "Láttu þína skoðun í ljós" sem er á síðunni "Þátttaka" er það gert með því að fara í "Breyta stillingum" á einingunni.


Svo er valinn flipinn "Texti/Þýðingar" og þar er spurningin.

Thinskodun-edit