Heildarstefna Hornafjörður Náttúrulega
Sveitarfélagið Hornafjörður hóf heildarstefnumótun árið 2019 með áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og víðtæka aðkomu íbúa, starfsmanna og hagsmunaaðila. Stefnan, Hornafjörður, náttúrulega!, var innleidd árið 2021 og endurskoðuð árið 2025, með samþykkt bæjarráðs 12. febrúar 2026. Í uppfærðri stefnu eru áherslur skýrðar og stoðir einfaldaðar í þrjár: umhverfi, fólkið og þjónusta, sem mynda grunn að stefnumótun sveitarfélagsins.
