Auglýsing um deiliskipulag að Skaftafelli III og IV

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum þann 11. nóvember að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Skaftafell III og IV skv. 41. gr. skipulaglaga nr. 123/2010.

Markmið með gerð Markmið með deiliskipulagi þessu er að sníða ramma utan um byggð lítilla húsa á jörðinni Skaftafell III og IV.

Tillagan verður til sýnis frá og með 19. nóvember 2021 til 3. Janúar 2022 í anddyri Ráðhúss Hafnarbraut 28, 780 Höfn.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til 3. janúar 2022. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.

Uppdráttur 1 uppdráttur 2 og Uppdráttur 3

Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagsstjóri