Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1211

Haldinn í ráðhúsi,
03.03.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Eyrún Fríða Árnadóttir formaður,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Arndís Lára Kolbrúnardóttir, stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2602012F - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 85
Fundargerð atvinnu- og menningamálanefndar númer 85 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
 
Gestir
Kristín Vala Þrastardóttir - Forstöðumaður menningarmiðstöðvar
Almenn mál
2. 202602142 - Innsent erindi varðandi samning um auglýsingar á upplýsingaskjám í sveitarfélaginu
Fulltrúar frá UMF Sindra ásamt verkefnastjóra markaðsmála og viðburða mæta á fund til þess að ræða mögulegt samstarf um auglýsingar á upplýsingaskjám í sveitarfélaginu.

Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og óskar eftir frekari upplýsingum. Verkefnastjóra markaðsmála- og viðburða falið að afla upplýsinga um auglýsingaþörf sveitarfélagsins.
 
Gestir
Emil Morávek
Gunnar Ingi Valgeirsson
3. 202601129 - Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Uppfærð drög að erindisbréfi fyrir spretthóp um heilsueflingu eldri borgara í Sveitarfélaginu Hornafirði lagt fram til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir framlagt erindisbréf með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs
4. 202602152 - Styrkbeiðni vegna kvikmyndar Hlyns Pálmasonar, Á LANDI OG SJÓ
Minnisblað stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa um málið ásamt fjárhagslegum áhrifum lagt fram.

Bæjarráð er jákvætt fyrir styrk að upphæð 5.000.000 kr.
Helmingur styrksins yrði fjármagnaður með óráðstöfuðu fé bæjarráðs og helming er vísað til viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
5. 202602150 - Slökkvilið Öræfa
Minnisblað slökkviliðsstjóra um tillögur að úrbótum búnaðar í Öræfum lagt fram.

Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og slökkviliðsstjóra falið að vinna málið áfram.
 
Gestir
Bartek Andersson Kass- Sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
6. 202602070 - Samningur um vallarumhirðu 2026
Fjárhagslega áhrif vegna hækkunar á samning um vallarumhirðu lögð fram.



Bæjarráð samþykkir samhljóða hækkunina þar sem hún rúmast innan fjárheimilda.
7. 202402127 - Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 46 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
46.fundur 26.febrúar 2026.pdf
8. 202602176 - Beiðni um samstarf vegna umsóknar til LIFE áætlunar - IceNAP
Lagt fram stuðningsbréf vegna IceNAP-verkefnisins, sem styður við innleiðingu Landsáætlunar Íslands um aðlögun að loftslagsbreytingum. Hornafjörður er meðal þeirra sveitarfélaga sem standa frammi fyrir verulegum áskorunum vegna loftslagsbreytinga og hefur áður tekið þátt í verkefnum tengdum loftslagsaðlögun. Með undirritun bréfsins lýsir sveitarfélagið vilja til áframhaldandi samstarfs og þátttöku í þróun aðferða til að styrkja samfélagið í Hornafirði að takast á við loftslagbreytingar.

Bæjarráð samþykkir að veita IceNAP-verkefninu formlegan stuðning og felur bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi stuðningsbréf. Sveitarfélagið leggur áherslu á mikilvægi markvissrar loftslagsaðlögunar, virks samráðs við íbúa og tengingar vísinda og stefnumótunar til að styrkja innviði og samfélag til framtíðar.
9. 202511103 - Hluthafafundur - Leigufélagið Bríet ehf
Boðað er til hluthafafundar Leigufélagsins Bríetar, fimmtudaginn 5. mars n.k., kl. 12:00.


Bæjarstjóra falið að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
10. 202601163 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambandsins frá 18. febrúar 2026 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 993.pdf
11. 202602177 - Umsókn í Framkvæmdarsjóð aldraðra 2026
Lögð eru fram gögn vegna umsóknar í framkvæmdarsjóð aldraðra 2026.

Lagt fram til kynningar.
12. 202509069 - Skaftfellingur
Atvinnu- og menningarmálanefnd vísar því til bæjarráðs hvort hægt sé að fjármagna birtingu Skaftfellings á vefnum timarit.is. Menningarmiðstöð Hornafjarðar er útgefandi Skaftfellings og eru allar útgáfur þess til innan stofnunarinnar. Hinsvegar er Skaftfellingur ekki til í rafrænni útgáfu og því þyrfti að ljósmynda hverja blaðsíðu fyrir sig. Timarit.is getur tekið ákveðin verkefni í forgang og ef ljósmynda þarf verkið kostar hver blaðsíða 100kr. svo gera má ráð fyrir kostnaði uppá um 500.000 kr. auk pökkunar og sendingu á Skaftfellingi til Reykjavíkur og heim aftur.
Nefndin taldi brýnt að miðla Skaftfellingi umfram aðrar útgáfur í sveitarfélaginu enda er útgáfan á vegum sveitarfélagsins og gildi heimildanna mikið og fjölbreytt.
birtingu Skaftfellings á vefnum timarit.is. Menningarmiðstöð Hornafjarðar er útgefandi Skaftfellings og eru allar útgáfur þess til innan stofnunarinnar. Hinsvegar er Skaftfellingur ekki til í rafrænni útgáfu og því þyrfti að ljósmynda hverja blaðsíðu fyrir sig. Timarit.is getur tekið ákveðin verkefni í forgang og ef ljósmynda þarf verkið kostar hver blaðsíða 100kr. svo gera má ráð fyrir kostnaði uppá um 500.000 kr. auk pökkunar og sendingu á Skaftfellingi til Reykjavíkur og heim aftur.
Nefndin taldi brýnt að miðla Skaftfellingi umfram aðrar útgáfur í sveitarfélaginu enda er útgáfan á vegum sveitarfélagsins og gildi heimildanna mikið og fjölbreytt.



Bæjarráð vísar beiðninni til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
 
Gestir
Kristín Vala Þrastardóttir - Forstöðumaður menningarmiðstöðvar
13. 202602116 - Staða Héraðsskjalasafns Austur-Skaftafellssýslu
Fram hafa komið óskir um aukna miðlun Héraðsskjalasafns á vefnum. Héraðsskjalaverði er annt um miðlun fjölbreyttra gagna í eigu safnsins en með tilliti til verkefnastöðu safnsins eru önnur mál brýnni. Héraðsskjalavörður sendir inn greinagerð á verkefnastöðu safnsins og skýrir þörf á auknu starfshlutfalli.


Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum um starfsmannafjölda, verkefni og stöðugildi.
 
Gestir
Kristín Vala Þrastardóttir - Forstöðumaður menningarmiðstöðvar
14. 202602136 - Styrkbeiðni frá Rótarýklúbb Rangæinga vegna safngripa á Samgöngusafn Skógasafns
Beiðni var vísað til styrkjaumræðu fræðslu- og frístundanefndar og atvinnu- og menningamálanefndar á síðasta fundi bæjarráðs, styrkjaumræða nefndanna hafði þá lokið og því er málið lagt aftur fram.

Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð 180.000 kr. Fjármagnið verður tekið af óráðstöfuðu fé bæjarráðs.
15. 202601070 - Stjórnsýslukæra UUA2601006 Byggingarheimild Skaftafell 3C
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði kærunni frá þar sem kærendur töldust ekki eiga lögvarða hagsmuni að málinu.

Lagt fram til kynningar.
2601006 Skaftafell 3C .pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til baka Prenta