Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð Hornafjarðar - 1208

Haldinn í ráðhúsi,
10.02.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Eyrún Fríða Árnadóttir formaður,
Gauti Árnason varaformaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Arndís Lára Kolbrúnardóttir, Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2601025F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 109
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 109 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
Almenn mál
2. 202510018 - Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins
Framkvæmdastjóri HAUST mætir á fund til þess að ræða fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins.

Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að gera drög að umsögn fyrir næsta fund bæjarráðs.
 
Gestir
Lára Guðmundsdóttir- Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlit Austurlands
3. 202602044 - Fjölmenningarleg inngilding- Ósk um samstarf
Innsent erindi frá skólameistara FAS um mögulegt samstarfsverkefni Sveitarfélagsins og FAS varðandi íslenskukennslu sem annað mál og samfélagslega inngildingu.


Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna á erindinu og vísar því til umfjöllunar í fjölmenningarráði. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að vinna að hugmyndum að frekari útfærslu.
 
Gestir
Guðjón Ragnar Jónasson- Skólameistari FAS
4. 202601156 - Umsögn um 312.mál alþingis- Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Drög að umsögn sviðsstjóra velferðarsviðs lögð fram.

Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að senda inn drögin.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinnson- Sviðsstjóri velferðarsviðs
5. 202601158 - Umsögn um mál 305 frá velferðarnefnd alþingis- Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.

Sviðsstjóra velferðarsviðs var falið að meta þörfina á umsögn og taldi ekki þörf á umsögn.
 
Gestir
Skúli Ingibergur Þórarinsson - Sviðstjóri velferðarsviðs
6. 202510014 - Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Minnisblað umhverfisfulltrúa um málið lagt fram.
Tilgangur er að skýra ábyrgð á förgun úrgangs samkvæmt gildandi samningsumhverfi og gera grein fyrir þeim ákvörðunum sem sveitarfélagið þarf að taka til að tryggja að úrgangur safnist ekki upp á flokkunarstöðinni.


Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og fjármálastjóra að yfirfara samninginn við Hringrás og í kjölfarið að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Hringrás til þess að fara yfir réttindi og skyldur beggja aðila.
 
Gestir
Hjördís Edda Olgeirsdóttir- Formaður umhverfis- og skipulagsnefndar.
Xiaoling Yu- Umhverfisfulltrúi
7. 202512004 - Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2026
Drög að húsnæðisáætlun 2026 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
8. 202512071 - Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
T.S.E. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 5. Álit lögmanns um málið lagt fram.

Bæjarráð óskar eftir tímasettri verkáætlun og staðfestingu á fjármögnum verkefnisins.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
9. 202512072 - Umsókn um lóð -Sandbakkavegur 3
T.S.E. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 3. Álit lögmanns um málið lagt fram.

Bæjarráð óskar eftir tímasettri verkáætlun og staðfestingu á fjármögnum verkefnisins.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
10. 202601064 - Verktakagreiðslur
Minnisblað fjármálastjóra um verktakagreiðslur lagt fram.


Lagt fram til kynningar.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
11. 202602038 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun lagður fram.



Bæjarráð samþykkir viðauka 1 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
FHÁ 26 Viðauki 1 - minnisblað.pdf
Viðauki_1.pdf
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
12. 202512092 - Reiknilíkön leik- og grunnskóla Planning Analytics
Minnisblað fjármálastjóra vegna þátttöku í samstarfsverkefni um innleiðingu reiknilíkans fyrir úthlutun og ráðstöfun fjármuna til leik- og grunnskóla

Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu. Fjármálastjóra falið að skoða hvort það rúmist innan fjárheimilda, að öðrum kosti að gera viðauka.
Samþykkt samhljóða.
 
Gestir
Valdís Ósk Sigurðardóttir- fjármálastjóri
13. 202602041 - Krafa um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns
Innsend krafa frá Marina Travel er varðar kröfu um skaðabætur vegna tafa á deiliskipulagi.

Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að gera drög að svari í samráði við lögmann.
14. 202602042 - Vefkönnun um hvernig megi einfalda regluverk verkefni sveitarfélaga
Athygli er vakin á vefkönnun ráðuneytisins þar sem óskað eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga.

Lagt fram til kynningar.
15. 202602043 - Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Atlantsflug hvetur Sveitarfélög sem hafa hagsmuni af skipulagi sjúkraflutninga, bráðaþjónustu og öryggisviðbragða um land allt komi sjónarmiðum sínum á framfæri áður en málið er afgreitt. Umsagnarfrestur er til og með 12. febrúar nk.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa umsögn og senda inn.
16. 202601159 - Umsögn um mál 307 frá umhverfis- og samgöngunefnd alþingis- Breyting á þingsályktun nr.24152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða
Bæjarráð óskaði eftir umsögn Múlaþings um málið, umsögn múlaþings var eftirfarandi:
Byggðaráð Múlaþings ítrekar fyrri umsögn sína um málið og leggur áherslu á mikilvægi þess að Hamarsvirkjun komist í nýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar. Virkjunin mun bæði hafa jákvæð áhrif á orkuöryggi landsmanna sem og bæta aðgengi að orku á Austurlandi sem er mikilvæg forsenda áframhaldandi verðmætasköpunar og uppbyggingu svæðisins.



Bæjarráð tekur samhljóða undir umsögn Múlaþings um málið. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa falið að senda inn umsögnina.
17. 202602011 - Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingastaður í flokki II-F-Krá -Fjárhúsið, Löngutorfu - F2182258
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - F- Krá- Fjárhúsið, hámarksfjöldi gesta 30 manns.

Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
18. 202512017 - Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður flokkur II-C minna gistiheimili - Oddnýjarhús- F2538542
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - C minna gistiheimili, Oddnýjarhús, hámarksffjöldi gesta 7 manns.

Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
19. 202602012 - Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður í flokki G- íbúðir-Höfn apartments, Vesturbraut 6- F2362274
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - G íbúðir, Höfn apartments, hámarksfjöldi gesta 32.

Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
20. 202301036 - Hornafjörður náttúrulega
Gerðar hafa verið tvær minniháttar breytingar á stefnu sveitarfélagsins, lokadrög heildarstefnu Hornafjörður, náttúrulega! lögð fram.

Gerðar voru tvær breytingar í stoðinni fólkið og eru þær eftirfarandi:

Tekur á velsæld íbúa og þeim samfélagslegu innviðum sem ýta undir heilbrigði, jöfnuð og gott mannlíf.
Stuðla að heilbrigði og velsæld fyrir alla frá vöggu til grafar.


Bæjarráð samþykkir samhljóða lokadrög heildarstefnunnar og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30 

Til baka Prenta