|
Fundinn sátu: Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður, Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður, Tinna Rut Sigurðardóttir formaður, Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður, Theódór Árni Stefánsson Fulltrúi ungmennaráðs, Guðjón Örn Magnússon 1. varamaður, Skúli Ingibergur Þórarinsson . |
|
Fundargerð ritaði: Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs |
|
|
|
| 3. 2601016F - Öldungaráð - 21 |
Fundargerð 21. fundar öldungaráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem haldin var 4. febrúar s.l. lögð fram til kynningar
|
| Gert grein fyrir fundargerð 21. fundar öldungaráðs. Velferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fundargerðina. |
|
|
|
|
|
| 1. 202601090 - Félagsfærni, samkennd og samskipti ungmenna í sveitarfélaginu |
Svanfríður Eygló Arnardóttir og Björn Daníel Sverrisson mæta á fundinn til að gera grein fyrir vinnu vinnuhóps sem settur var á fót í upphafi árs. Hlutverk hópsins er að móta samstarfsverkefni á vegum velferðarsviðs, fræðslu- og frístundasviðs, Grunnskóla Hornafjarðar og Ungmennafélagsins Sindra. Verkefnið snýr að vinnu við að auka félagsfærni, samkennd og jákvæð samskipti ungmenna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vonast er til að þegar fram líði stundir munu samstarfsaðilum að verkefninu fjölga og um verði að ræða verkefni sem verði fastur liður í barna og ungmennastarfi í sveitarfélaginu til framtíðar.
|
| Svanfríður og Björn gerðu grein fyrir verkefninu, tilgangi þess, markmiðum og hvar vinnan er stödd í dag. Velferðarnefnd fagnar því að verkefnið sé komið af stað og hlakkar til að sjá það þróast áfram. |
|
| |
| Gestir |
| Björn Daníel Sverrisson |
| Svanfríður Eygló Arnardóttir |
|
|
| 2. 202602040 - Rekstrarleiga bifreiða - Stuðnings- og virkniþjónusta |
Verið er að endurskoða samninga um langtíma rekstrarleigu bifreiða stuðnings- og virkniþjónustu. Sviðsstjóri og stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu fara yfir minnisblað um stöðu verkefnisins.
|
| Farið yfir minnisblað um endurskoðun á þjónustusamningi vegna rekstrarleigu þjónustubifreiða stuðnings- og virkniþjónustu. Starfsmönnum falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. |
|
| |
| Gestir |
| Sigrún Bessý Guðmundsdóttir |
|
|
| 4. 202503079 - Hönnun Ekra- endurbætur viðbygging |
Loka hönnun og áætlanir í tengslum við fyrsta áfanga endurbóta á jarðhæð Ekrunnar sem hýsir dagþjónustu og félagsstarf aldraðra lagðar fram til kynningar. Í fyrsta áfanga er stefnt að því að gera endurbætur á Ekrusalnum, skipta um gólfefni, loftaklæðningu og bæta hljóðvist í salnum ásamt því að setja upp nýjan margmiðlunar og fjarfundarbúnað. Eldhúsið verður stækkað, innréttingar og tæki endurnýjuð og þá verður skipt um gólfefni og loftaklæðningu í anddyri hússins. Þá verða kynntar fyrstu hugmyndir að hönnun útisvæðis við Ekrusalinn.
|
Farið yfir hvaða verkþættir falla undir fyrsta áfanga framkvæmda á jarðhæð Ekrunnar. Einnig skoðaðar fyrstu hugmyndir að hönnun sólskála og garðs.
Velferðarnefnd fagnar því að framkvæmdir séu að fara af stað í Ekrunni. |
|
|
|
| 5. 202601129 - Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara |
Ein af aðgerðum ársins 2026 í framtíðarsýn um málefni aldraðra í Sveitarfélaginu Hornafirði er að setja á fót spretthóp sem skal framkvæma úttekt á úrræðum heilsueflingar eldri borgara í sveitarfélaginu. Starfsmenn hafa unnið að því að gera drög að vinnu spretthópsins og leggja nú fram minnisblað þess efnis.
|
| Minnisblað um fyrirhugaða vinnu spretthóps um heilsueflingu eldri borgara í Sveitarfélaginu Hornafirði lagt fram til kynningar. Málinu vísað áfram til frekari umræðu í bæjarráði. |
|
|
|
| 6. 202510042 - Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
Sviðsstjóri fer yfir lykiltölur úr starfsemi barnaverndarþjónustu 2025 ásamt samanburði síðustu 5 ára.
|
| Lagt fram til kynningar. Málinu vísað áfram til kynningar í bæjarráði. |
|
|
|
| 7. 202601156 - Umsögn um 312.mál alþingis- Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.) |
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.).
|
| Starfsmanni falið að vinna að umsögn í samræmi við umræðu á fundinum. Vísað til frekari umræðu í bæjarráði. |
|
|
|
| 8. 202601158 - Umsögn um mál 305 frá velferðarnefnd alþingis- Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn |
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
|
| Velferðarnefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við frumvarpið. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50 |