Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 281

Haldinn í ráðhúsi,
26.01.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Skúli Ingólfsson formaður,
Halldór Tjörvi Einarsson varaformaður,
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður,
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður,
Kristján Reynir Ívarsson Fulltrúi ungmennaráðs,
Ögmundur Jón Guðnason varamaður,
Sigurjón Andrésson , Vignir Júlíusson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar.
Fundargerð ritaði: Sigurjón Andrésson, hafnarstjóri / bæjarstjóri


Dagskrá: 
Fundargerðir til kynningar
2. 202402131 - Fundargerðir og erindi Hafnasambands sveitarfélaga 2024-25
Lagt til kynningar.

stjórn Hafnasambands Íslands - 476.pdf
stjórn Hafnasambands Íslands - 477.pdf
stjórn Hafnasambands Íslands - 478.pdf
Almenn mál
1. 202301036 - Hornafjörður náttúrulega
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjöllunnar.

Hafnarstjórn lýsir ánægju með þær breytingar sem gerðar hafa verið á stefnunni og gerir engar athugasemdir við hana.
HORNAFJÖRÐUR, NÁTTÚRLEGA! STEFNA 2025 - 07.01.26.pdf
3. 202601091 - Hafnasamband Íslands
Lögð fram til kynningar samantekt Hafnasambands Íslands, Framtíðin og íslenskar hafnir, sem byggir á vinnustofu haldinni í Ólafsvík haustið 2025 og dregur saman helstu áskoranir og tækifæri íslenskra hafna á næstu árum.

Lagt til kynningar.
Skýrsla - Framtíðin og íslenskar hafnir.pdf
4. 202601088 - Dýpkun á Grynnslum 2026-2028
Lagt fram erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað er eftir samþykki Hafnarstjórnar Hornafjarðarhafnar til að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði vegna dýpkunar á Grynnslunum 2026 til 2028.

Verkefnið felur í sér dýpkun að meðaltali rúmlega 650.000 m³ á ári yfir tímabilið, samtals tæplega 2 milljónir m³. Hafnarstjórn leggur áherslu á mikilvægi þess að höfnin, sem er önnur lífæð samfélagsins og lykilinnviður fyrir atvinnulíf og byggð, njóti loks raunverulegs fyrirsjáanleika varðandi dýpkun. Í samstarfi við Vegagerðina og sérfræðinga, meðal annars DHI, hefur verið unnið að ítarlegum greiningum sem sýna að sandburður á svæðinu er kerfisbundinn og að hefðbundin dýpkun er í eðli sínu bráðabirgðalausn sem undirstrikar mikilvægi áframhaldandi faglegs samtals og rannsókna um varanlegri lausnir.


Hafnarstjórn fagnar niðurstöðu útboðsins, sem markar í fyrsta sinn raunverulegan fyrirsjáanleika í þessu lykilverkefni sem skiptir sköpum fyrir fyrirtæki sem hafa fjárfest hafa fyrir milljarða hér á Höfn og geta ekki búið við óvissu um aðgengi að höfninni.

Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Boskalis Westminister Limited, í samræmi við niðurstöðu útboðsins og tillögu Vegagerðarinnar.

Samþykkt samhljóða.
Tender Sheet (ITT) - Hornafjörður 2026.pdf
Opnunarskýrsla - 25-110 Hornafjörður Dredging in Grynnslin 2026-2028.pdf
5. 202601092 - Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2026
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar lögð fram. Hækkun á gjalskrá nemur 5% og hækkun á launalið gjaldskrár er 7%. Framvegis verður gjaldskrá bundin vísitölu neysluverðs og skal hún endurreiknuð árlega 1. janúar í samræmi við breytingar á vísitölunni.

Hafnarstjórn samþykkir gjaldskrá 2026 fyrir Hornafjarðahöfn.

Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar1 2026.pdf
6. 202601125 - Fjárhagsáætlun 2026
Lögð fram fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.

Hafnarstjórn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15 

Til baka Prenta