Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 346

Haldinn í ráðhúsi,
12.02.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Gauti Árnason aðalmaður,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður,
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður,
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 1. varaforseti,
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Arndís Lára Kolbrúnardóttir, Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2512017F - Bæjarstjórn Hornafjarðar - 345
Mál tekið fyrir á 1:40 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
2. 2601003F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1204
Mál tekið fyrir á 2:00 mínútu.

Lagt fram til umræðu og kynningar.
3. 2601008F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1205
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 7 - Beiðni um styrk til lagfæringar á dreni á Silfurnesvelli. Sigurjón Andrésson til andsvars. Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars.

Mál tekið fyrir á 2:30 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
4. 2601014F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1206
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir lið númer 3 - Fræðslu- og frístundanefnd - 132, lið númer 4 - Brúum umönnunarbilið. Skýrsla og tillögur aðgerðahóps.

Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 1 - Velferðarnefnd - 47, lið númer 5 - Stefna í málefnum fatlaðs fólks 2027-2035.

Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið númer 3 - Fræðslu- og frístundanefnd - 132, lið númer 5 - Spjall við nýjan skólameistara FAS.

Elías Tjörvi Halldórsson tók til máls undir lið númer 2 - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 108, lið númer 4 - Umhverfisviðurkenning 2025.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 3 - Fræðslu- og frístundanefnd - 132, lið númer 4 - Brúum umönnunarbilið. Skýrsla og tillögur aðgerðahóps.

Mál tekið fyrir á 7:35 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
5. 2601021F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1207
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 84, lið númer 6 - Skaftfellingur og undir lið númer 4 - Menningarverðlaun 2026.

Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið númer 4 - Málefni héraðsfréttablaðsins Eystrahorns.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 5 - Samgönguáætlun 2026-2040, undir lið númer 17 - Umsögn um drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga og undir lið númer 19 - Uppbyggingasjóður SASS - nýtt fyrirkomulag.

Gauti Árnason fékk leyfi varaforseta til þess að taka til máls. Gauti Árnason til andsvars undir lið númer 19 - Uppbyggingasjóður SASS - nýtt fyrirkomulag.

Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 5 - Samgönguáætlun 2026-2040.

Mál tekið fyrir á 19:10 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
6. 2602003F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1208
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 1- Umhverfis- og skipulagsnefnd - 109, lið númer 1 - Endurskipulag móttökusvæðis og undir lið númer 2 - Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs.

Elías Tjörvi Halldórsson tók til máls undir lið númer 2 - Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls undir sama lið og undir máli númer 3 - Fjölmenningarleg inngilding- Ósk um samstarf.

Mál tekið fyrir á 38:20 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
Almenn mál
7. 202010016 - Deiliskipulag Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Vinnslutillaga að heildarendurskoðun deiliskipulags í Skaftafelli var auglýst frá 22. september til 3. nóvember 2025. Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem fellir hið fyrra úr gildi. Ekki er um að ræða róttæka breytingu á fyrirkomulagi mannvirkja og aðstöðu. Skerpt er á stefnumörkun um ýmis atriði en helstu breytingar felast í rýmkuðum byggingarreit fyrir gestastofu og breyttu fyrirkomulagi starfsmannaíbúða í Sandaseli.
Umsagnir bárust vegna vinnslutillögu og hefur verið brugðist við þeim. Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að tillagan verði kynnt í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga og lagði til við bæjarstjórn að hún verði auglýst til umsagnar skv. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Björgvin Óskar Sigurjónssón tók til máls.

Mál tekið fyrir á 51:15 mínútu.


Forseti lagði til að tillagan yrði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41.gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
A1468-011-D06 Deiliskipulag fyrir skaftafell - uppdráttur til auglýsingar.pdf
A1468-010-D06 Deiliskipulag fyrir Skaftafell - Tillaga til auglýsingar.pdf
8. 202601010 - Úthlutun byggðakvóta 2025-2026
Fengin var frestur til þess að skila tillögum Sveitarfélagsins að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026

Mál tekið fyrir á 55:00 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að framlögð tillaga verði lögð fram til innviðaráðuneytisins.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9. 202601088 - Dýpkun á Grynnslum 2026-2028
Vegagerðin óskaði eftir því við Hafnarstjórn að ganga til samninga við lægstbjóðanda í útboði vegna dýpkunar á Grynnslunum 2026 til 2028.

Hafnarstjórn samþykkti að gengið yrði til samninga við lægstbjóðanda, Boskalis Westminister Limited, í samræmi við niðurstöðu útboðsins og tillögu Vegagerðarinnar. Erindið lagt fram til staðfestingar bæjarstjórnar.

Sigurjón Andrésson tók til máls.


Mál tekið fyrir á 55:45 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Opnunarskýrsla - 25-110 Hornafjörður Dredging in Grynnslin 2026-2028.pdf
Tender Sheet (ITT) - Hornafjörður 2026.pdf
10. 202601125 - Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2026
Lögð er fram fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.

Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls. Sigurjón Andrésson til andsvars.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.

Mál tekið fyrir á 1:00:20 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.
Tillagan var borin upp til atkvæða.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
11. 202601092 - Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2026
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar lögð fram. Hækkun á gjaldskrá nemur 5% og hækkun á launalið gjaldskrár er 7%. Framvegis verður gjaldskrá bundin vísitölu neysluverðs og skal hún endurreiknuð árlega 1. janúar í samræmi við breytingar á vísitölunni.

Mál tekið fyrir á 1:06:00 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti gjaldskrá Hornafjarðarhafnar fyrir árið 2026.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar1 2026.pdf
12. 202602038 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026, vegna óskar um aukafjárveitingu vegna styrks til Golfklúbbs Hornafjarðar, fundarkostnaðar fræðslu- og frístundanefndar og styrk til Björgunarbátasjóðs Hornafjarðar vegna kaupa á nýrri Ingibjörgu, lagður fram.
Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lækkun á handbæru fé að upphæð 8,1 m.kr. í A-hluta og 5 m.kr. í B-hluta.

Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls.

Mál tekið fyrir á 1:07:25 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka 1 og bar hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Viðauki_1.pdf
FHÁ 26 Viðauki 1 - minnisblað.pdf
13. 202301036 - Hornafjörður náttúrulega
Lögð er fram til samþykkis heildarstefna sveitarfélagsins, Hornafjörður, náttúrulega!

Mál tekið fyrir á 1:10:15 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða stefnu sveitarfélagsins.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
HORNAFJÖRÐUR, NÁTTÚRLEGA! STEFNA - LOKA 03.02.26.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:15 

Til baka Prenta