|
|
| 1. 202602067 - Aðalskipulagsbreyting vegna uppbyggingu miðbæjar á Höfn |
Vinnslutillaga vegna hönnunar nýs miðbæjar á Höfn lögð fram. Vinnslutillagan hefur verið kynnt rekstraraðilum á Heppunni og til stendur að kynna opinberlega fyrir íbúum sveitarfélagsins í byrjun apríl.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir góða kynningu á verkefninu og felur starfsmanni að vinna áfram með málsaðila að verkefninu. |
|
| |
| Gestir |
| Davíð Ingi Bustion |
|
|
| 2. 202509045 - Breyting á aðalskipulagi vegna jarðanna Birgis og Króks |
Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags hefur verið í kynningu frá 30. desember 2025 til 27. janúar 2026. Alls bárust 8 umsagnir. Umsagnir og tillaga að svörum liggja fyrir fundinum. Samkvæmt uppfærðum gögnum hefur Krókur verið tekinn út úr áframhaldandi vinnu.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breytingin verði unnin samhliða heildarendurskoðun og að breytingatillaga verði auglýst í kjölfar gildistöku nýs aðalskipulags. Fjöldi gistirúma er yfir 200 og því skylda að tilkynna framkvæmdirnar til skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Nefndin vísar umsögnum við lýsingu og viðbrögðum við þeim til bæjarstjórnar. |
|
| |
| Gestir |
| Davíð Ingi Bustion |
|
|
| 3. 202602002 - Deiliskipulag - Jörðin Birgi í Borgarhöfn |
Tekin er fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi, jörðin Birgi í Borgarhöfn. Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu hótels ásamt tengdri starfsmannaaðstöðu. Skipulagssvæðið er sunnan við Þjóðvegi 1. Það er 8,4 ha að stærð og liggur innan lóðarmarka Birgis sem er 16.1 ha.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði uppfærð til samræmis við afgreiðslu nefndar í máli nr. 2 á dagskrá. Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu. |
|
| |
| Gestir |
| Davíð Ingi Bustion |
|
|
| 4. 202303123 - Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar |
Lögð fram umsögn Skipulagsstofnunar, dags. 4.2.2026, vegna athugunar aðalskipulagstillögu skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga. Einnig lagt fram minnisblað með drögum að svörum sveitarfélagsins við efnisatriðum umsagnarinnar.
|
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur fjallað um umsögn Skipulagsstofnunar og samþykkir svör í framangreindu minnisblaði. Nefndin leggur til við bæjarsjórn að áður framlögð tillaga að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040 ásamt umhverfismatsskýrslu, sbr. fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 1.10.2025 og bæjarstjórnar 21.10.2025, verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, að gerðum þeim lagfæringum sem lýst er í minnisblaðinu.
|
|
| |
| Gestir |
| Matthildur Kr. Elmarsdóttir |
|
|
| 5. 202504082 - Barna og ungmennaþing 2025 |
Þann 18. nóvember var haldið Barna- og ungmennaþing á Hornafirði, þar sem yfir 300 börn og ungmenni tóku þátt. Grunnskólar sveitarfélagsins og framhaldsskólinn tóku þátt, ásamt fulltrúum úr atvinnulífinu og RÍN-hópum sem kynntu sínar nálganir á þeim málstofum sem voru til umfjöllunar. Einnig tók elsti árgangur leikskólanna þátt og fór yfir málin. Grunnniðurstöður þingsins voru kynntar tveimur dögum síðar eða þann 20.nóvember, en Ungmennaráð hefur óskað eftir því að starfsfólk fræðslusviðs kynni nánari niðurstöður fyrir öllum ráðum, fastanefndum og starfsstöðvum sveitarfélagsins.
|
| Emil Moravék fór yfir niðurstöður barna- og ungmennaþings. Nefndin þakkar Emil fyrir góða og greinargóða kynningu. |
|
| |
| Gestir |
| Emil Morávek |
|
|
| 6. 202602006 - Deiliskipulag - Skarðshólar |
Tekin er fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi Skarðshóla. Í skipulaginu er skilgreindur byggingarreitur fyrir íbúðarhúsi og útihúsi auk aðkomu að svæðinu. Málsaðili hefur óskað eftir málsmeðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 4 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Málinu vísað til bæjarstjórnar. |
|
|
|
| 7. 202602052 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - Plægja á 4x95q Al streng frá S370G1 Í landi Hólms að inntaksstað Lnr.228015-01 |
Tekin er fyrir framkvæmdaleyfisumsókn Rarik vegna plægingu rafstrengs í landi Hólms. Áætluð lengd strengs er um 450 m.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd telur framkvæmdina óverulega. Hún hafi ekki í för með sér varanleg áhrif á land og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld, með vísan í 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012. |
|
|
|
| 8. 202601108 - Umhverfisviðurkenning 2025 |
Fyrirhuguð veiting umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2025 tekin fyrir. Sveitarfélagið hefur auglýst eftir tilnefningum.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd hvetur íbúa til að senda inn tilnefningar á afgreidsla@hornafjordur.is. |
|
|
|
| 9. 202602033 - Silfurbraut 19, viðbygging |
Tekin er fyrir umsókn um leyfi til að byggja um 15 m² sólstofu við núverandi endaíbúð að Silfurbraut 19. Ekki er í gildi deiliskipulag sem nær yfir lóðina. Eigandi hefur kynnt áformin í grennd.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við byggingu fyrirhugaðrar sólstofu. |
|
|
|
| 10. 202510067 - Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - hleðslustöð við Nettó |
Tekin er fyrir umsókn ON vegna fyrirhugaðs hleðslugarðs við Litlubrú 1 (Netto).
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar erindinu til umræðu ungmennaráðs. |
|
|
|
| 11. 202602083 - umsókn um byggingaheimild eða -leyfi- Hafnarbraut 47 |
Tekin er fyrir umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu við Hafnarbraut47 (Brautarholt). Viðbyggingin saman stendur af kjallara og tveimur hæðum ásamt tvöföldum staðsteyptum bílskúr. Ekki er í gildi deiliskipulag sem nær yfir lóðina.
|
| Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum í samræmi við umræður á fundinum. |
|
|
|