Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Velferðarnefnd - 47

Haldinn í Miðgarði,
19.01.2026 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður,
Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður,
Tinna Rut Sigurðardóttir formaður,
Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður,
Theódór Árni Stefánsson Fulltrúi ungmennaráðs,
Sigrún Sigurgeirsdóttir 2. varamaður,
Skúli Ingibergur Þórarinsson .
Fundargerð ritaði: Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2511007F - Fjölmenningarráð - 26
Anna Birna Elvarsdóttir gerir grein fyrir fundagerð frá 26. fundi fjölmenningarráðs sem fram fór 9.12.2025.

Velferðarnefnd þakkar Önnu Birnu fyrir góða yfirferð.
 
Gestir
Anna Birna Elvarsdóttir
Almenn mál
2. 202505041 - Rekstur velferðarsviðs 2025
Rekstrartölur velferðarsviðs 2025 lagðar fram til kynningar.

Sviðsstjóri fer yfir rekstrartölur fyrir 2025. Rekstur ársins er innan áætlunar. Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina.
 
Gestir
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir
3. 202601068 - Kaup á þjónustubifreið - Stuðnings- og virkniþjónusta
Í fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir kaupum á nýrri þjónustubifreið fyrir stuðnings- og virkniþjónustu. Bifreiðin væri sérútbúinn með þeim hætti að hægt væri að sinna akstursþjónustu með hjólastólaðagengi.

Framlagt er minnisblað starfsmanna þar sem lagt er til að sveitarfélagið kaupi sérútbúna Volkswagen Transport bifreið sem er sérútbúin með hjólastólalyftu á hlið bílsins. Auk þess er bifreiðin útbúin brautum og festingum til að tryggja nægt pláss og öryggi farþega.


Sigrún Bessý gerði grein fyrir áformum um kaup á þjónustubifreið fyrir stuðnings- og virkniþjónustu. Velferðarnefnd fagnar því að til standi að festa kaup á þjónustubifreið sem getur þjónustað einstaklinga í hjólastól. Málinu vísað til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks og bæjarráði.
 
Gestir
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir
4. 202601074 - Úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu 2026
Samkvæmt framtíðarsýn um málefni aldraðra skal á árinu 2026 vinna óháða úttekt á þjónustu sveitarfélagsins í málaflokknum.
Samið hefur verið við Samskiptastöðina að sjá um framkvæmd úttektar á stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sviðsstjóri velferðarsviðs fer yfir framkvæmd úttektarinnar, tímalínu, markmið og hvernig niðurstöður verða nýttar til úrbóta.


Farið yfir áform um úttekt á stuðnings- og virkniþjónustu velferðarsviðs. Áætlað er að úttektin fari fram í febrúar og mars og niðurstöður liggi fyrir í lok apríl.

Velferðarnefnd fagnar því að verið sé að fara í þessa vinnu og hlakkar til að sjá niðurstöður úttektarinnar.

Málinu vísað áfram til frekari umfjöllunar í notendaráði fatlaðs fólks.
5. 202601075 - Stefna í málefnum fatlaðs fólks 2027-2035
Stefnt er að því að vinna drög að stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Sveitarfélaginu Hornafirði fyrir árin 2027-2035. Lagt er fram minnisblað þar sem farið er yfir áform um hvernig staðið skuli að mótun stefnunnar.

Sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir áform um stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks til næstu 8 ára. Velferðarnefnd vísar málinu áfram til frekari umræðu í notendaráði fatlaðs fólks og bæjarráði.
6. 202304055 - Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur verið aðili að samning um samræmda móttöku flóttafólks frá árinu 2023. Lagður er fram til kynningar viðauki III við samning sem undirritaður var af fulltrúum Sveitarfélagsins hornafjarðar og Félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins þann 18.12.2025.

III viðauki samnings um samræmda móttöku lagður fram til kynningar.
7. 202601085 - Fjárhagsaðstoð 2026
Samkvæmt 11. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði breytist grunnfjárhæð til framfærslu skv. neysluvísitölu ár hvert. Samkvæmt sömu grein hefur velferðarnefnd heimild til að leggja til aðra breytingu telji hún ástæða til þess.

Velferðarnefnd samþykkir hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar í samræmi við ákvæði 11. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði.
8. 202601081 - Félagslegt leiguhúsnæði - Tekju og eignaviðmið 2026
Samkvæmt reglum um félagslegt leiguhúsnæði í Sveitarfélaginu Hornafirði skal velferðarnefnd taka afstöðu til breytinga á tekju- og eignaviðmiðum umsækjanda í byrjun hvers árs.

Velferðarnefnd samþykkir hækkun á tekju- og eignamörkum skv. vísitölu neysluverðs.
9. 202506079 - Farsældarráð á Suðurlandi
Sveitarfélagið hefur sent frá sér tilnefningu í farsældarráð suðurlands sem er nú lögð fyrir velferðarnefnd til kynningar. Sveitarfélagið tilnefnir Þórgunni Torfadóttur, sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs sem aðalfulltrúa og Skúla Ingiberg Þórarinsson, sviðsstjóra velferðarsviðs til vara.

Lagt fram til kynningar
10. 202301036 - Hornafjörður náttúrulega
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjölunnar.

Endurskoðuð stefna lögð fram til kynningar. Starfsmanni falið að fylgja umræðum á fundinum eftir í áframhaldandi vinnu við mótun stefnunnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45 

Til baka Prenta