Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 108

Haldinn í ráðhúsi,
21.01.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Þröstur Jóhannsson aðalmaður,
Helga Árnadóttir aðalmaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Sindri Sigurjón Einarsson Fulltrúi ungmennaráðs,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir formaður,
Elías Tjörvi Halldórsson varaformaður,
Gunnlaugur Róbertsson Skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Róbertsson, Skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202510014 - Óleyst atriði varðandi fyrirkomulag úrgangsmála við Hringrás
Tekið er fyrir minnisblað vegna fundar með Hringrás varðandi rekstur móttökustöðvar. Jafnframt er gerð grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum við móttökustöð.

Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu.
2. 202601013 - Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Minnisblað vegna nýrrar samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði tekið fyrir.

Með uppfærðri samþykkt er stefnt að því að tryggja samræmi við gildandi löggjöf, endurspegla breytta framkvæmd í úrgangsmálum og veita skýrari leiðbeiningar fyrir íbúa, atvinnurekstur og sveitarfélagið sjálft.


Lagt fram til kynningar.
3. 202502067 - Áætluð verkefni vegna umhverfismála 2026
Verkefni vegna umhverfismála fyrir árið 2026 lögð fram.

Lagt fram til kynningar.
4. 202601108 - Umhverfisviðurkenning 2025
Fyrirhuguð veiting umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2025 tekin fyrir.

Umhverfis- og skipulagsnefnd felur starfsmanni að auglýsa eftir tilnefningum einstaklinga og fyrirtækja/ stofnana sem hafa unnið ötullega að umhverfis- og loftslagsmálum í sveitarfélaginu. Horft verði til breytinga sem viðkomandi hafi gert á sinni starfsemi eða heimilishaldi í þeim tilgangi að draga úr áhrifum á umhverfi og loftslag.
5. 202601049 - Stjórnsýslukæra UUA2601001 framkvæmdaleyfi jarðtæknirannsóknir Hoffelli
Lögð er fram stjórnsýslukæra vegna ákvörðun sveitarfélagsins um að samþykkja umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir jarðtæknirannsóknum við Hoffelslón.

Lagt fram til kynningar.
6. 202601070 - Stjórnsýslukæra UUA2601006 Byggingarheimild Skaftafell 3C
Lögð er fram stjórnsýslukæra vegna ákvörðun byggingarfulltrúa sveitarfélagsins um að veita byggingarheimild fyrir byggingu 13 gistihúsa að Skaftafelli 3C í Öræfum.

Lagt fram til kynningar.
7. 202401096 - Skriða - Breyting á aðalskipulagi
Erindi vegna aðalskipulgasbreytingar að Skriðu tekið fyrir. Málsaðili óskar eftir að vinna vegna breytingar verði tekin inn í heildarendurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins sem er yfirstandandi.


Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ekki samþykkt ósk málsaðila þar sem svör liggja ekki fyrir vegna athugasemda og spurninga sem lagðar hafa verið fram. Því liggur umfang verkefnisins ekki fyrir að svo stöddu.
8. 202512090 - Breyting á deiliskipulagi miðsvæðis
Tekin er fyrir tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðsvæði, skóla- og íþróttasvæði. Breytingin felur í sér að lóðin að Hafnarbraut 40b er tekin út.

Starfsmanni falið að grenndarkynna breytingu í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
9. 202511061 - Breyting á deiliskipulagi Nýtt verslunar og þjónustu svæði á Höfn
Óveruleg breyting á deiliskipulagi verslunar- og þjónustusvæðis á Höfn tekin fyrir.

Starfsmanni falið að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
10. 202010016 - Deiliskipulag Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Vinnslutillaga að heildarendurskoðun deiliskipulags í Skaftafelli var auglýst frá 22. september til 3. nóvember 2025. Um er að ræða nýtt deiliskipulag sem fellir hið fyrra úr gildi. Ekki er um að ræða róttæka breytingu á fyrirkomulagi mannvirkja og aðstöðu. Skerpt er á stefnumörkun um ýmis atriði en helstu breytingar felast í rýmkuðum byggingarreit fyrir gestastofu og breyttu fyrirkomulagi starfsmannaíbúða í Sandaseli.


Helga Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið. Umsagnir bárust vegna vinnslutillögu og hefur verið brugðist við þeim. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn að hún verði auglýst til umsagnar skv. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
A1468-011-D06 Deiliskipulag fyrir skaftafell - uppdráttur til auglýsingar.pdf
A1468-010-D06 Deiliskipulag fyrir Skaftafell - Tillaga til auglýsingar.pdf
11. 202301036 - Hornafjörður náttúrulega
Kynningu og samráði vegna endurskoðaðrar stefnu sveitarfélagsins, Hornafjörður Náttúrulega!, er nú lokið eftir fjögurra vikna kynningar- og umsagnaferli. Lagt fram til umræðu og umfjöllunar.

Lokadrög lögð fram til kynningar.
HORNAFJÖRÐUR, NÁTTÚRLEGA! STEFNA 2025 - 07.01.26.pdf
12. 202510087 - Umsókn um byggingarheimild - Hjarðarnes, Fóðrunarhús
Tekin er fyrir umsókn um byggingu um 250 m² fóðrunarhúss í Hjarðarnesi. Fyrirhuguð áform eru ekki í samræmi við skilmála deiliskipulags sem nær yfir lóðina.
Grenndarkynning hefur farið fram


Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis.
13. 202409091 - Umsókn um byggingarheimild - Hagatún 14, garðhús
Grenndarkynning hefur farið fram, engar ath. bárust.

Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfis.
14. 202510130 - Hraunhóll 4 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Tekin eru fyrir áform vegna um 15 m² viðbyggingar við Hraunhól 4.

Elías Tjörvi Halldórsson vék af fundi undir þessum lið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd heimilar viðbyggingu í samræmi við framlögð gögn. Í samræmi við 3. málsgr. 43. gr. skipulagslaga er fallið frá grenndarkynningu enda muni hagsmunir nágranna ekki skerðast hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
15. 202510031 - Fyrirspurn til Umhverfis- og skipulagsnefndar - Hafnarbraut 13-Atvinnuhúsnæði
Lögð eru fram drög að útliti og staðsetningu fyrirhugaðrar byggingar að Hafnarbraut 13. Óskað er eftir afstöðu nefndar við framlögðum áformum. Lóðin er staðsett á miðsvæði M1 en ekki liggur fyrir deiliskipulag sem nær yfir svæðið. Í aðalskipulagi Hornafjarðar kemur fram að "Við skipulag og byggingu svæðisins skal leggja áherslu á að styrkja heildaryfirbragð byggðarinnar, fylla í bæjarmyndina svo hún verði samfelld. Meðfram Hafnarbraut frá Bogaslóð að Hafnarvík skal virða byggðarmynstur gömlu byggðarinnar og byggja á forsendum hennar. Íbúðabyggð með ívafi verslunar, þjónustu og menningarstarfs. Byggingar á einni til tveimur hæðum."

Í tillögunni er byggingareitur alveg upp við gangstétt Hafnarbrautar. Meirihluti nefndar telur staðsetninguna þrengja að götumynd, skapa ónæði fyrir þau sem dvelja í húsinu og rýra umferðaröryggi á gatnamótum Bogaslóðar og Hafnarbrautar. Meirihluti nefndarinnar setur því sem skilyrði að byggingarreitur sé a.m.k. 1,5 m frá núverandi gangstétt.

Hjördís Edda Olgeirsdóttir leggur fram sérbókun:
Hjördís bendir á að staðsetning húsa við Hafnarbraut á þessu svæði er mjög breytileg þar sem m.a. annað hús er alveg upp við gangstétt, þá séu þau rök ekki næg til að fara fram á breytingar. Hjördís tekur undir sjónarmið vegna umferðaröryggis en telur að það sé hægt að útfæra lausn á því.

Starfsmanni falið að grenndarkynna uppfærð áform skv. ákvörðun meirihluta nefndar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45 

Til baka Prenta