Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Íbúaráð - Nes og Lón - 11

Haldinn í ráðhúsi,
09.02.2026 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir aðalmaður,
Ásthildur Gísladóttir aðalmaður,
Ásta Steinunn Eiríksdóttir aðalmaður,
Arndís Lára Kolbrúnardóttir .
Fundargerð ritaði: Arndís Lára Kolbrúnardóttir, stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 202601142 - Mótun og fyrirkomulag íbúaráða
Bæjarráð mætir á fund og ræðir fyrirkomulag íbúaráðanna og mótun þeirra til framtíðar.

Íbúaráð þakkar bæjarráði fyrir samtalið og lýsir yfir ánægju með starfið fram að þessu. Íbúaráð telur að starfið sé að skila árangri og telur mikilvægt að hlutverk íbúaráðanna verði rýnt og þróað áfram. Íbúaráð telur að val í íbúaráð ætti að eiga sér stað samhliða næstu sveitastjórnarkosningum og tekur undir með íbúaráði Suðursveitar- og Mýra um lýðræðislegt umboð ráðanna.
 
Gestir
Gauti Árnason
Eyrún Fríða Árnadóttir
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. 202510014 - Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Á síðasta fundi íbúaráðs var óskað eftir að ræða aftur við formann umhverfis- og skipulagsnefndar um sorpmál í dreifbýlinu, með sérstaka áherslu á flokkun og hrægáma.

Íbúaráð þakkar formanni umhverfis- og skipulagsnefndar fyrir góðar umræður og óskar eftir upplýsingum um framvindu mála á næsta fundi. Íbúaráð óskar einnig eftir upplýsingum um hvaða forsendur liggja að baki gjaldtöku fyrir noktun hrægáma. Íbúaráð telur að leiðbeiningar um flokkun úrgangs þurfi reglulegri kynningu og telur að slíkar upplýsingar yrðu til bóta.
 
Gestir
Hjördís Edda Olgeirsdóttir- formaður umhverfis- og skipulagsnefndar
3. 202310043 - Félagsheimili sveitarfélagsins
Til stendur að fara í framkvæmdir á fundarhúsinu í Lóni í vor og sumar, það sem stendur til að gera er eftirfarandi:

- Mála veggi innandyra og laga útihurðar
- Mála allt að utandyra
- Gera stíg upp að hurð inn í sal frá bílastæði farið sömu leið og stígur er í dag



Íbúaráð fagnar fyrirhuguðum framkvæmdum við fundarhúsið í Lóni með von um meiri notkun á húsinu sem styður enn frekar við áframhaldandi viðhald. Íbúaráð ítrekar beiðni sína um að skoða útfærslu á umsjónarmanni fundarhússins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:30 

Til baka Prenta