|
Fundinn sátu: Sveinbjörg Jónsdóttir varaformaður, Gunnar Stígur Reynisson aðalmaður, Íris Heiður Jóhannsdóttir aðalmaður, Tinna Rut Sigurðardóttir formaður, Ingólfur Guðni Einarsson aðalmaður, Theódór Árni Stefánsson Fulltrúi ungmennaráðs, Skúli Ingibergur Þórarinsson . |
|
Fundargerð ritaði: Skúli Ingibergur Þórarinsson, sviðsstjóri velferðarsviðs |
|
|
|
| 2. 2601011F - Fjölmenningarráð - 27 |
Fundargerð 27. fundar fjölmenningarráðs lögð fram til kynningar.
|
Verkefnastjóri fjölmenningar, jafnréttis og inngildingar fór yfir fundargerð 27. fundar fjölmenningarráðs.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina. |
|
|
|
|
|
| 1. 202602044 - Fjölmenningarleg inngilding - Ósk um samstarf |
Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu (FAS) hefur óskað eftir samstarfi við Sveitarfélagið Hornafjörð og stuðningi til að vinna að meiri inngildingu íbúa af erlendu bergi brotnu. FAS hefur í vetur kennt íslensku fyrir erlenda íbúa en til að gera enn betur hefur starfsfólk hug á að standa fyrir námskeiði sem snýr að kynningu á samfélaginu, bæði íslensku samfélagi en ekki síður sérstöður hornfirsks samfélags. Samfélagið er lykillinn að því að læra íslensku og um leið verður íslenskan líka lykillinn að því að verða hluti af samfélaginu. Því er um metnaðarfullt verkefni að ræða sem sveitarfélagið er reiðubúið að styðja við.
|
Áfram verður kenndur áfangi í FAS fyrir erlenda íbúa í íslenskukennslu en verkefnið hefur gengið mjög vel í vetur með nemendafjölda uppá 30 nemendur. Nú langar skólanum að taka næsta skref og bjóða uppá kennslu í fjölmenningar inngildingu. Um er að ræða áfanga sem er sambland af íslensku og ensku þar sem umhverfið og samfélagið er nýtt sem kennsluefnið. Fólk fær að kynnast samfélaginu í gegnum kennsluna t.d. með kynningum frá félagasamtökum og fyrirtækjum. Markmiðið er að aðstoða íbúa í að verða sjálfbær hluti af samfélaginu, fólkið komi hingað, búi og vinni hér og séu virkir þátttakendur.
Verkefnastjóri fjölmenningar, jafnréttis og inngildingar hjá sveitarfélaginu mun vinna að verkefninu í samstarfi við FAS ásamt öðrum starfsmönnum t.d. hjá fræðslu- og frístundasviði.
Velferðarnefnd þakkar Guðjóni kærlega fyrir flotta kynningu og hlakkar til að sjá verkefnið þróast áfram. |
|
|
|
| 3. 202602183 - Endurnýjun jafnréttisáætlunar 2027-2031 |
Velferðarnefnd fer með jafnréttismál í sveitarfélaginu og ber ábyrgð á vinnu og eftirfylgni þeirra fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Núverandi áætlun gildir út árið 2026 og ber sveitarfélaginu að samþykkja nýja áætlun eigi síðar en einu ári eftir kosningar, eða eigi síðar en 16. maí 2026.
Lagt er fram minnisblað verkefnastjóra fjölmenningar, jafnréttis og inngildingar sem snýr að þeirri vinnu sem fram undan er varðandi endurnýjun jafnréttisáætlunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2027-2031.
|
Verkefnastjóri fjölmenningar, jafnréttis og inngildingar fór yfir minnisblað um endurnýjun jafnréttisáætlunar Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2027-2031. Anna Birna mun leiða vinnuna og kynna stöðu verkefnisins jafn óðum og í samræmi við tímalínu þess.
Velferðarnefnd þakkar Önnu Birnu fyrir góða kynningu. |
|
|
|
| 4. 202602173 - Breytingar á lögum um jöfnunarsjóð sveitarfélaga |
Alþingi samþykkti á liðnu ári ný heildarlög um jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Meðal þeirra breytinga sem ný lög fela í sér er að framlög sjóðsins vegna málefna fatlaðs fólks skuli reiknuð á grundvelli samræmds mats á stuðningsþörf (SIS) á landsvísu.
Óvissa hefur verið með heimild sveitarfélaganna til þess að gera SIS-mat að skilyrði fyrir veitingu þjónustu. Nú hefur félags- og húsnæðisráðuneytið aflað lögfræðiálits og álitsgerð um málið lögð fyrir velferðarnefnd.
|
| Sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir minnisblað vegna álitsgerðar félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina og vísar málinu áfram til frekari umræðu í bæjarráði og felur starfsmanni að fylgja því eftir í samræmi við umræður á fundinum. |
|
|
|
| 5. 202602177 - Umsókn í Framkvæmdarsjóð aldraðra 2026 |
Sótt hefur verið um styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna framkvæmda á jarðhæð Ekrunnar. Umsókn lögð fram til kynningar.
|
| Farið yfir umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna framkvæmda á jarðhæð Ekrunnar. |
|
|
|
| 6. 202601129 - Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara |
Erindisbréf fyrir spretthóp um heilsueflingu eldri borgara í sveitarfélaginu hefur verið samþykkt og óskað hefur verið eftir tilnefningum í hópinn frá viðeigandi aðilum.
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir mætir á fundinn og gerir grein fyrir tímalínu og verkáætlun í tengslum við vinnu hópsins.
|
Farið yfir erindisbréf fyrir spretthóp um heilsueflingu eldri borgara.
Stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu fór yfir þá greiningarvinnu sem hún ásamt verkefnastjóra dagþjónustu og iðju hafa unnið fram að þessu. Stefnt er að því að spretthópurinn hefji störf í mars þegar skipað hefur verið í hann. Þá er stefnt að því að halda vinnustofur fljótlega eftir páska ásamt því að fá kynningar frá öðrum sveitarfélögum og rýna fyrirliggjandi gögn. Stefnt er að því að spretthópurinn skili af sér skýrslu ekki síður en fyrir lok maí.
Velferðarnefnd þakkar fyrir kynninguna og hlakkar til að sjá niðurstöður og tillögur spretthópsins. |
|
|
|
| 7. 202603006 - Flutningur á starfsemi dagþjónustu vegna framkvæmda í Ekru |
Ljóst er að flytja þarf starfsemi dagþjónustu aldraðra yfir í Miðgarð, Víkurbraut 24, á meðan á framkvæmdum stendur á jarðhæð Ekrunnar standa yfir nú á vordögum.
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir mætir á fundinn og gerir grein fyrir því hvernig verður staðið að flutningum og hvernig þjónustan mun fara fram á framkvæmdatíma.
|
Farið yfir minnisblað um flutning þjónustu dagvistar aldraðra í Ekru yfir í Miðgarð á meðan á framkvæmdum stendur. Lögð er áhersla á að vel verði að flutningunum staðið og að vel verði haldið utanum þann þjónustuhóp sem verið er að vinna með. Aðstaða í Miðgarði er mjög góð, á að rýma starfsemina vel og uppfyllt þær kröfur sem til hennar eru gerðar á meðan unnið er að úrbótum í Ekrunni.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferðina. |
|
|
|
| 8. 202602188 - Frumkvæðisathugun um eftirlit með fósturheimilum |
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) sinnir eftirliti með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála nr. 88/2021 (lög um GEV). Samkvæmt 14. gr. laga um GEV hefur stofnunin að eigin frumkvæði eftirlit með gæðum þjónustu.
Stofnunin hefur að beiðni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins (FRN), í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um aðstæður á fósturheimilinu Bakkakoti og umræðu um skort á eftirliti með fósturheimilum, stofnað til frumkvæðisathugunar á eftirliti barnaverndarþjónusta með börnum í fóstri, skv. 1. mgr. 14. gr. laga um GEV. FRN leggur áherslu á að athugunin nái til allra barna og ungmenna í fóstri í dag og að niðurstöður liggi fyrir þremur mánuðum eftir upphaf athugunar.
Sviðsstjóri fer yfir hvernig staðið verður að frumkvæðisathugun GEV og eftir hvaða gögnum er óskað.
|
Frumkvæðisathugun GEV í tengslum við eftirlit með fósturfjölskyldum kynnt. Farið yfir það hvernig verður staðið að gagnaöflun og skilum.
Velferðarnefnd fagnar því að verið sé að fara í þessa nauðsynlegu vinnu. |
|
|
|
| 9. 202602122 - Fjárhagsaðstoð |
Trúnaðarmál
|
| Bókað í trúnaðarmálabók |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:12 |