Fundargerðir

Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 347

Haldinn í ráðhúsi,
12.03.2026 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Gauti Árnason aðalmaður,
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður,
Tinna Rut Sigurðardóttir 1. varamaður,
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður,
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður,
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir 2. varamaður,
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður,
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri, Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Fundargerðir til staðfestingar
1. 2601023F - Bæjarstjórn Hornafjarðar - 346
Mál tekið fyrir á 4:00 mínútu.

Lagt fram til umræðu og kynningar.
2. 2602009F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1209
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir dagskrárlið númer 8 - Frístundaakstur 2026.

Tinna Rut Sigurðardóttir tók undir með Eyrúnu Fríðu undir dagskrárlið númer 8 - Frístundaakstur 2026. og tók til máls undir dagskrárlið númer 1- Velferðarnefnd - 48, dagskrárlið númer 1 - Félagsfærni, samkennd og samskipti ungmenna í sveitarfélaginu

Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir dagskrárlið númer 8 - Frístundaakstur 2026.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir dagskrárlið númer 1- Velferðarnefnd - 48, dagskrárlið númer 3 - Öldungaráð -21 og undir dagskrárlið númer 16 - Beiðni um ferðaheimild vegna funda kjörinna fulltrúa.

Mál tekið fyrir á 4:25 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
3. 2602015F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1210
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir tók til máls undir dagskrárlið númer 1- Fræðslu- og frístundanefnd - 134, dagskrárlið númer 5 - fræðslu og frístundanefndar númer 5 - Lengri opnun sundlaugar á þriðjudögum, tilraun í febrúar.

Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir dagskrárlið númer 1- Fræðslu- og frístundanefnd - 134, dagskrárlið númer 2 - Skráningardagar í leikskóla og undir dagskrárlið númer 4 - Sjónarhóll í dag.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir dagskrárlið númer 3 - Íbúaráð Öræfum - 10.

Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók undir með Ásgerði undir dagskrárlið númer 3 - Íbúaráð Öræfum - 10.

Mál tekið fyrir á 14:40 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
4. 2602020F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1211
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir dagskrárlið númer 1 - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 85, dagskrárlið númer 6 - Menningarhátíð 2026.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 1 - Atvinnu- og menningarmálanefnd - 85, dagskrárlið númer 1 - Vatnajökulsþjóðgarður - Fundargerðir stjórnar og svæðisráðs - 2026.
Sigurjón Andrésson til andsvars. Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars. Eyrún Fríða Árnadóttir til andsvars.

Mál tekið fyrir á 25:50 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
5. 2603004F - Bæjarráð Hornafjarðar - 1212
Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 6 - Framkvæmd - Hagahverfi (ÍB5), innviðauppbygging, undirbúningur.

Mál tekið fyrir á 43:50 mínútu.


Lagt fram til umræðu og kynningar.
Almenn mál
6. 202509045 - Breyting á aðalskipulagi vegna jarðanna Birgis og Króks
Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags hefur verið í kynningu frá 30. desember 2025 til 27. janúar 2026. Alls bárust 8 umsagnir. Umsagnir og tillaga að svörum liggja fyrir fundinum. Samkvæmt uppfærðum gögnum hefur Krókur verið tekinn út úr áframhaldandi vinnu.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls.

Mál tekið fyrir á 45:40 mínútu.


Forseti lagði til að breytingin verði unnin með yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7. 202602006 - Deiliskipulag - Skarðshólar
Tekin er fyrir tillaga að nýju deiliskipulagi Skarðshóla. Í skipulaginu er skilgreindur byggingarreitur fyrir íbúðarhús og útihús auk aðkomu að svæðinu.

Mál tekið fyrir á 51:10 mínútu.


Forseti lagði til að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8. 202602038 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Hér er gerð grein fyrir viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og fjárhagslegum áhrifum hans. Viðaukinn felur í sér eftirfarandi breytingar á rekstri: Umsókn um endurnýjun á æfingatækjum í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir hönd leigutaka, 4,09 m.kr. Styrkbeiðni vegna endurbóta á félagsheimili í Stekkhól, 8,34 m.kr. Styrkbeiðni til Still Vivid ehf. vegna kvikmyndarinnar Á landi og sjó, 2,50 m.kr. Meðfylgjandi yfirlit sýnir áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta fjárhagsáætlun ársins. Viðbótarfjárheimild að fjárhæð 14,93 m.kr. verður mætt með lækkun á handbæru fé.

Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls.
Sigurjón Andrésson til andsvars.

Mál tekið fyrir á mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka 2 og bar hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
FHÁ 26 Viðauki 2 - minnisblað.pdf
Viðauki_2.pdf
9. 202602147 - Ráðning fjármálastjóra
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt bæjarstjóra leiddu ráðningarferli vegna stöðu fjármálastjóra en ákveðið var að auglýsa stöðuna þar sem tímabundin ráðning fjármálastjóra rennur út 1. júní næstkomandi. Í ferlinu bárust fjórar umsóknir en aðeins einn umsækjandi uppfyllti hæfniskilyrði.

Lagt er til að Valdís Ósk Sigurðardóttir verði ráðin í stöðu fjármálastjóra hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Hún er með BS í sálfræði með viðskiptafræði sem aukagrein, hefur lokið námi sem viðurkenndur bókari og er með M.Acc. í reikningsskilum og endurskoðun. Að auki býr hún yfir umfangsmikilli þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu og störfum fyrir sveitarfélög.

Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.
Sigurjón Andrésson til andsvars. Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars. Eyrún Fríða Árnadóttir til andsvars.

Mál tekið fyrir á 57:40 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti ráðningu Valdísar Óskar Sigurðardóttur í stöðu fjármálastjóra.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10. 202601129 - Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Erindisbréf fyrir spretthóp um heilsueflingu eldri borgara í Sveitarfélaginu Hornafirði lagt fram til samþykktar. Lagt er til að fulltrúar Sveitarfélagsins í spretthópnum verði Sigrún Sigurgeirsdóttir fulltrúi K-lista, Tinna Rut Sigurðardóttir fulltrúi D-lista og Íris Heiður Jóhannsdóttir fulltrúi B-lista.

Mál tekið fyrir á 1:04:40 mínútu.


Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagt erindisbréf.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti tilnefningar fulltrúa í spretthópinn.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til baka Prenta